Þokkalegasta ferðaveður í dag Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. mars 2016 09:55 Af Holtavörðuheiði Vísir/GVA „
Það er hvergi vont veður og ferðaveðrið í dag að ætti að vera þokkalegt. Það er ennþá bara mars þannig að þetta er í betra lagi miðað við oft áður,“ segir vakthafandi veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands aðspurður um ferðaveðrið í dag. Viðbúið er að margir leggi land undir fót og snúi heim á leið í dag eftir páskafrí. Nokkuð víða fyrir norðan og austan til á landinu má búast við viðvarandi éljagagi sem mun þó minnka eftir því sem líður á daginn. Þá hefur aðeins snjóað syðst á suðurlandi í morgun og viðbúið er að það nái uppundur Hellisheiðina að sunnanverðu.VeðurspáNorðaustlæg átt, 8-13 m/s og víða dálítil él, en bjart með köflum V-til. Austlægari og snjómugga SV-til á morgun, en annars smá él á víð og dreif. Hiti 0 til 5 stig S-til að deginum, en annars kringum frostmark.Færð og aðstæður á vegumVegir eru að heita má auðir um allt sunnanvert landið. Á Vesturlandi eru vegir greiðfærir á láglendi en hálkublettir á sumum fjallvegum. Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja víða á Vestfjörðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum. Ófært er norður í Árneshrepp en mokstur er hafinn. Á Norðurlandi vestra er nánast autt en þó er snjóþekja á Þverárfjalli og hálka á Siglufjarðarvegi. Það er hálka á Öxnadalsheiði en við Eyjafjörð og þar fyrir austan er víða vetrarfærð, hálka eða snjóþekja og snjókoma. Ófært er yfir Hólasand og um Dettifossveg en mokstur er hafinn. Þæfingsfærð er á Mývatnsöræfum en mokstur stendur yfir. Snjóþekja og skafrenningur er á Möðrudalsöræfum og á Vopnafjarðarheiði. Hálka eða snjóþekja er víða á Austurlandi og einhver éljagangur. Ófært er um Breiðdalsheiði.
Veður Mest lesið Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira