Landslið Dags vinsælla en Bayern München Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. febrúar 2016 06:00 Dagur Sigurðsson og aðstoðarþjálfari hans Alexander Haase. Vísir/EPA
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Þýskalands, er orðinn þjóðhetja í Þýskalandi eftir að hafa stýrt Þjóðverjum til sigurs á EM. Áhuginn á landsliðinu náði nýjum hæðum eins og hann upplifði í leigubílsferð. „Það var gríðarlega gaman fyrir mig að móttökuathöfnin skyldi fara fram á mínum gamla heimavelli,“ segir þýska þjóðhetjan Dagur Sigurðsson en hann sveif enn um á bleiku skýi er Fréttablaðið heyrði í honum í gær. Þá var hann að klára líklega einn eftirminnilegasta sólarhring sem hann hefur lifað. Dagurinn byrjaði á því að Þýskaland varð Evrópumeistari undir hans stjórn í Póllandi og endaði á glæsilegri sigurathöfn í Berlín um sólarhring síðar. Hún fór fram í húsinu þar sem hann stýrði Füchse Berlin um árabil. „Það voru tíu þúsund manns í Max Schmeling-höllinni og komust færri að en vildu. Það þurfti að vísa fólki frá. Það var allt brjálað þarna og ótrúleg stemning. Þetta var ótrúlega skemmtilegt. Það voru margir stuðningsmenn Füchse þarna og ég fékk því flottar móttökur.“Dagur Sigurðsson er búinn að vera mikið í símanum.Vísir/EPAÞurfti að fresta Japansferð Það er búið að vera brjálað að gera hjá landsliðsþjálfaranum síðan bikarinn fór á loft. Allir vilja tala við hann og Dagur þarf að sinna fjölmiðlastörfum áfram næstu daga. „Ég er búinn að fara í ótrúlega mikið af viðtölum. Ég er búinn að vera að heiman í fjórar vikur og var að vonast eftir því að geta slakað aðeins á heima en nú er ég á leiðinni til Hamborgar í dag. Fer til Kölnar á morgun og svo Nürnberg og Mainz. Þessi vika er uppbókuð,“ segir Dagur en þetta fjölmiðlaferðalag hefur breytt áætlunum hans. „Ég ætlaði að fara til Japans en þurfti að fresta þeirri ferð út af þessum skuldbindingum. Þessi áhugi er kominn aðeins út fyrir handboltann líka. Nú er ég að fara í spjallþætti og svona. Ég skil vel að Handknattleikssambandið vilji nýta mig í þetta til þess að sækja fram fyrir íþróttina á meðan við erum í sviðsljósinu. Þetta er mín vinna.“Dagur Sigurðsson þakkar öllum í Max Schmeling-höllinni fyrir stuðninginn.Vísir/GettySagði Merkel að ganga á Íslandi Það er óhætt að tala um handboltaæði í Þýskalandi þessa dagana enda hefur áhuginn á mótinu og þýska liðinu verið ótrúlegur og náði auðvitað hámarki í úrslitaleiknum. Stærstu stjörnur Þýskalands hafa tíst um landsliðið og Angela Merkel kanslari hringdi í Dag í tvígang. Hvernig er að vera orðinn þjóðhetja í Þýskalandi? „Það er mjög skrítið. Við hjónin fórum heim í leigubíl í gær og leigubílstjórinn neitaði að taka við borgun. Ég hef aldrei lent í því áður. Leigubílstjórinn var svona ánægður með landsliðsþjálfarann sinn. Þetta var magnað,“ segir Dagur og hlær. Honum fannst líka gaman að heyra í tvígang frá Angelu Merkel. „Það var mjög skemmtilegt að heyra í henni eftir að við komumst í úrslit og mjög gaman að hún skyldi hringja líka aftur eftir úrslitaleikinn. Kallinn er bara kominn á „speed dial“ hjá henni,“ segir Dagur léttur en hann hvatti þýska kanslarann til að koma til Íslands. „Ég hafði frétt að hún væri mikil göngukona og ég áréttaði við hana að hún ætti að nýta sér góðar gönguleiðir á Íslandi og heitu pottana. Ég bauð mig nú ekki fram sem leiðsögumann en skal taka það að mér ef hún vill.“ Allar helstu íþróttastjörnur Þýskalands tjáðu sig um landsliðið á Twitter og meira að segja keisarinn Franz Beckenbauer gerði það líka. Slík var stemningin fyrir liðinu. Landsliðsþjálfarinn segist hafa heyrt að um 17 milljónir Þjóðverja hafi fylgst með úrslitaleiknum. Það segir allt sem segja þarf um handboltaæðið í Þýskalandi. „Þetta eru ansi hraustlegar tölur sem maður hefur ekki kynnst. Mesti munurinn er sá að þarna er fólk farið að horfa á sem alla jafna horfir ekki á handbolta,“ segir Dagur ánægður með hafa náð þjóðinni að skjánum. „Þetta er áður óþekkt áhorf. Bayern München er kannski að spila á sama tíma en öll þjóðin er að horfa á handbolta.“Dagur með Evrópubikarinn.Vísir/GettyÁtti ekki von á þessum árangri Það þarf vart að tala mikið um þann ótrúlega árangur sem Dagur náði. Hann var með yngsta liðið á mótinu og forföllin í liðinu voru slík að þetta var í raun B-lið þýska liðsins sem varð Evrópumeistari. Ótrúlegt afrek sem seint verður leikið eftir en leyfði hann sér nokkurn tíma að dreyma um að liðið færi alla leið? „Nei, ég gerði það ekki. Ég er tiltölulega stutt á veg kominn með liðið og ekkert langt síðan ég byrjaði með það. Ég var með alveg nýtt lið í höndunum og hugsanlega hefði ég látið mig dreyma ef ég hefði verið með mitt sterkasta lið. Frá HM í Katar voru ellefu eða tólf breytingar á hópnum. Við höfðum samt spilað vel í eitt og hálft ár en ég sá þetta nú ekki fyrir. Menn meiðast svo í mótinu og það er þriðji fyrirliði liðsins sem lyftir bikarnum að lokum,“ segir Dagur og getur ekki annað en hlegið. „Við vorum með einn vinstri hornamann sem hafði ekki spilað 40 leiki heldur 40 mínútur. Svo erum við með tvær hetjur í lokin sem horfðu á riðlakeppnina og milliriðilinn í sófanum heima hjá sér. Við duttum á einhverja öldu sem tók okkur alla leið.“Langt á undan áætlun Er Dagur tók við liðinu var stefnan sett á að byggja upp nýtt lið sem myndi toppa á HM 2019 og Ólympíuleikunum 2020. Dagur er því langt á undan áætlun. „Ég var búinn að hugsa að það væri gott að vera í topp átta í Póllandi og hafa því náð stöðugleika með liðið. Í kjölfarið væri hægt að fara að banka á undanúrslitasæti. Nú er tröppugangurinn farinn og við verðum að vera inni í undanúrslitum það sem eftir er,“ segir Dagur.Vísir/GettyVísir/Getty
EM 2016 karla í handbolta Tengdar fréttir „Kraftaverkið í Kraká“ hjá Degi á pari við Dani 1992 og Grikki 2004 Dagur Sigurðsson stýrði yngsta liði EM-sögunnar til gulls eftir sigur á Spáni í úrslitaleik í gær. 1. febrúar 2016 12:00 „Stærstu þakkirnar fær Dagur Sigurðsson“ Fyrrverandi besti handboltamaður heims segir Dag lykilmanninn á bakvið árangur Þýskalands. 1. febrúar 2016 08:15 Brand: Dagur er einstakur karakter Maðurinn með mottuna sem gerði Þýskaland að heimsmeisturum 2007 lofar Dag Sigurðsson í hástert. 2. febrúar 2016 11:30 Dagur gæti hugsað sér að þjálfa fótboltalið í framtíðinni Nýbakaður Evrópumeistari í handbolta hefur áður íhugað að fara út í fótboltaþjálfun. 2. febrúar 2016 10:30 Dagur: Angela Merkel bauð okkur í kaffibolla Að leyfa nýju mönnunum að spila snerist ekkert um traust. Það var bara ekkert annað í boði. 1. febrúar 2016 09:45 Kanslarinn, forsetinn og ráðherra hrósa Degi og þýsku strákunum Dagur Sigurðsson er hlaðinn lofi um allt Þýskaland fyrir árangur handboltalandsliðsins á Evrópumótinu. 1. febrúar 2016 11:00 Fullkomið Dagsverk Dagur Sigurðsson fór með hálfgert B-landslið Þýskalands á EM í Póllandi en stóð uppi sem Evrópumeistari eftir magnaða frammistöðu gegn Spáni í úrslitaleiknum. Degi var víða hampað í Þýskalandi eftir sigurinn. 1. febrúar 2016 06:00 Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Úkraína 3-5 | Óhamingjunni varð allt að vopni Fótbolti Auglýsir ólögleg veðmál: „Hryggir mig mjög að Kristófer fari þessa leið“ Körfubolti Kristófer fjarlægir sig frá Coolbet fjölskyldunni Körfubolti Reiður yfir mistökum Mikaels: „Negldu þessu helvíti í burtu“ Fótbolti Mörk Íslands og Úkraínu: Tvö undir lokin frá gestunum Fótbolti Miðasala á leik Íslands og Úkraínu hefst aftur í hádeginu í dag Fótbolti Engin hjartaaðgerð en smá magnyl skaðar ekki Fótbolti Einkunnir íslenska liðsins: Albert fremstur á meðal jafningja Fótbolti Ný upplifun fyrir strákana: „Líklega legið þungt á þeim“ Fótbolti Mikil gleði á Ölveri og Arnar steig á stokk Fótbolti Fleiri fréttir Bjarni með tólf og KA vann meistarana Átta frá Blæ dugðu ekki til fyrsta sigursins Handboltinn í fyrsta sæti en tilbiður enn listagyðjuna Draumadeildin staðið undir væntingum Leyfðum okkur hluti sem að við höfum ekki verið að gera Háspenna þegar Selfoss fékk sín fyrstu stig Viktor Gísli og Bjarki unnu í Meistaradeildinni Nýliðarnir hársbreidd frá sigri í Krikanum Guðjón og Arnór stýrðu til sigurs í Þýskalandi Uppgjörið: Valur - Afturelding 35-25 | Magnaður Björgvin Páll lagði grunninn Sammála Snorra: „Alltaf á hreinu að við vorum á sömu blaðsíðunni“ Nýtur sín vel í sterkari deild: „Alveg sannfærður um að ég hafi valið vel“ Anton og Jónas áfram fastagestir á EM Skilur ekki hvernig var hægt að breyta víti í markmannskast ÍBV og Valur ein á toppnum eftir háspennu í Breiðholti Donni öflugur og skildi heimamenn eftir í sárum Íslenska tríóið fagnaði frábærum sigri í toppslag Íslendingarnir frábærir og fögnuðu í Danmörku Allt upp á tíu hjá Elínu Klöru Varaforseti EHF handtekinn Vonast til að landsliðstreyjurnar fari í sölu á næstu vikum „Fjárhagsstaðan býður ekki upp á það að við leikum okkur með þann miðafjölda“ Lovísa Thompson kemur aftur inn í íslenska A-landsliðið Sjáðu svakalega vítakeppni þegar frændliðin börðust í bikarnum Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Laus úr útlegðinni og mættur heim Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Sjá meira
„Kraftaverkið í Kraká“ hjá Degi á pari við Dani 1992 og Grikki 2004 Dagur Sigurðsson stýrði yngsta liði EM-sögunnar til gulls eftir sigur á Spáni í úrslitaleik í gær. 1. febrúar 2016 12:00
„Stærstu þakkirnar fær Dagur Sigurðsson“ Fyrrverandi besti handboltamaður heims segir Dag lykilmanninn á bakvið árangur Þýskalands. 1. febrúar 2016 08:15
Brand: Dagur er einstakur karakter Maðurinn með mottuna sem gerði Þýskaland að heimsmeisturum 2007 lofar Dag Sigurðsson í hástert. 2. febrúar 2016 11:30
Dagur gæti hugsað sér að þjálfa fótboltalið í framtíðinni Nýbakaður Evrópumeistari í handbolta hefur áður íhugað að fara út í fótboltaþjálfun. 2. febrúar 2016 10:30
Dagur: Angela Merkel bauð okkur í kaffibolla Að leyfa nýju mönnunum að spila snerist ekkert um traust. Það var bara ekkert annað í boði. 1. febrúar 2016 09:45
Kanslarinn, forsetinn og ráðherra hrósa Degi og þýsku strákunum Dagur Sigurðsson er hlaðinn lofi um allt Þýskaland fyrir árangur handboltalandsliðsins á Evrópumótinu. 1. febrúar 2016 11:00
Fullkomið Dagsverk Dagur Sigurðsson fór með hálfgert B-landslið Þýskalands á EM í Póllandi en stóð uppi sem Evrópumeistari eftir magnaða frammistöðu gegn Spáni í úrslitaleiknum. Degi var víða hampað í Þýskalandi eftir sigurinn. 1. febrúar 2016 06:00