Lífið

Allir meðlimir ABBA komu saman í Stokkhólmi

Atli Ísleifsson skrifar
Besta hljómsveit allra tíma?
Besta hljómsveit allra tíma? Mynd/Abba
Agneta, Björn, Benny og Anni-Frid voru öll mætt á rauða dregilinn við frumsýningu kvöldverðarsýningarinnar „Mamma Mia: The Party“ í Gröna Lund í Stokkhólmi í gærkvöldi. Þetta var í fyrsta sinn sem þau sáust öll fjögur saman frá árinu 2008.

Þau Agneta Fältskog, Björn Ulvaeus, Benny Andersson og Anni-Frid Lyngstad komu fyrst fram á rauða dreglinum, en sátu síðan sitt í hvoru lagi á meðan sýningin stóð yfir. Eftir sýningu stigu þau svo öll saman upp á smærra svið í um hálfa mínútu þar sem sjaldgæft tækifæri gafst til að ná ljósmynd af þeim öllum saman.

Meðlimir sveitarinnar sáust síðast öll saman við frumsýningu myndarinnar Mamma Mia árið 2008. Þannig sáust þau ekki saman við opnun ABBA-safnsins í Stokkhólmi árið 2013 eða við útgáfu sérstakrar bókar sem gefin var út í tilefni af fjörutíu ára afmælis sigurs sveitarinnar í Eurovision árið 2014.

Mamma Mia: The Party er ný söngleikjasýning og hugarsmíð Björns þar sem sögusviðið er gríska öldurhúsið sem kemur fyrir í Mamma Mia!

ABBA-sveitin var stofnuð árið 1972 en lagði upp laupana 1983 eftir að hafa selt um 180 milljónir platna. Frá þeim tíma hafa fleiri hundruð milljónir platna sveitarinnar selst.

Fyrsta plata ABBA var Ring Ring sem kom út árið 1973, en sú síðasta The Visitors árið 1981.

Sveitin sló í gegn í Eurovision-keppninni árið 1974 þar sem hún bar sigur úr býtum með lagið Waterloo. Söngleikurinn Mamma Mia! var frumsýndur árið 1999.

Vísir/AFP
Vísir/AFP
Vísir/AFP
Vísir/AFP

Mamma Mia The Party! At Tyrol and all 4 members of ABBA gathered again! Amazing night!!!!

Posted by ABBA on Wednesday, 20 January 2016





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.