Þetta er fimmta myndabókin sem Kristján Ingi gefur út frá árinu 2009. Allar eru þær hugsaðar fyrir erlenda ferðamenn og gefnar út á erlendum tungumálum. Sumar eru að koma út í þriðju prentun, svo sem I Was here og Niceland.
„Þessar bækur hafa einhvern veginn hitt í mark, bæði fyrir það að brotið á þeim er skemmtilegt og ég hef lagt áherslu á að hafa myndirnar sem eðlilegastar og reynt að fanga stemningu sem fólk upplifir þegar það ferðast um landið. Það er kúnst að missa sig ekki í myndvinnslunni eins og mér finnst sumir detta svolítið í á þessum tölvutímum, þá geta litir orðið óeðlilegir,“ segir Kristján Ingi sem kveðst forðast að hafa fólk á myndum. „Ég vil að landslagið og kyrrðin njóti sín,“ útskýrir hann.

„Ég gaf út barnabækur í gamla daga, meðal annars Húsdýrin okkar sem margar kynslóðir þekkja. Eins gerði ég margar bækur fyrir Námsgagnastofnun en nú í seinni tíð hefur landslagsljósmyndun átt hug minn allan og ég hef snúið mér að útgáfu á landkynningarbókum sem hafa bara gengið vel, I was here og Niceland hafa verið meðal mest seldu bóka í þeim flokki á Íslandi frá því að þær komu út.“