Strokið þykir mikið áfall fyrir forsetann Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. júlí 2015 07:00 Forseti Mexíkó sagði á sínum tíma ófyrirgefanlegt ef Joaquin Guzman næði að strjúka aftur. nordicphotos/afp
Hlið hafa verið sett upp á hraðbrautum, landamæragæsla stórlega efld og flugvöllum hefur verið lokað í tilraun Mexíkómanna til að fanga eiturlyfjabaróninn Joaquin Guzman sem strauk úr öryggisfangelsi á laugardag. Aðgerðirnar hafa ekki borið árangur. Strok Guzmans þykir mikið áfall fyrir forseta Mexíkó, Enrique Peña Nieto. Yfirvöld náðu að handsama Guzman í fyrra eftir að hann hafði strokið árið 2001. Var forsetinn þá spurður af blaðamanni hvort möguleiki væri á að Guzman gæti strokið aftur. „Það væri meira en óheppilegt. Það væri ófyrirgefanlegt. Ríkisstjórnin mun gera ráðstafanir til að tryggja að það gerist aldrei aftur,“ svaraði forsetinn. Peña Nieto lofaði þjóð sinni í gær að handsama Guzman á ný. Peter Bensinger, fyrrverandi framkvæmdastjóri DEA, fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna, sagði í gær að strok Guzmans væri mikið áfall og að hann hefði átt að vista í bandarísku fangelsi. Bandaríkin höfðu krafist framsals Guzmans, sem er ákærður fyrir fíkniefnabrot. Peña Nieto hefur barist fyrir því að Mexíkó rétti yfir og fangelsi eigin stórglæpamenn í stað þess að framselja þá til Bandaríkjanna eins og áður var.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira