Besta byrjun Breiðabliks frá meistaraárinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2015 06:00 Blikar eru búnir að vinna sex af sjö leikjum sínum. vísir/valli
Breiðablik hefur farið liða best af stað í Pepsi-deild kvenna. Blikastúlkur unnu gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Selfossi í Pepsi-deildinni í fyrradag en með honum náðu þær fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar. Blikar eru búnir að vinna sér inn 19 stig, fjórum meira en Stjarnan og Selfoss sem eru í 2. og 3. sæti. Blikastúlkur eru búnar að vinna sex af fyrstu sjö leikjum sínum og gera eitt jafntefli. Markatalan er líka frábær; 23 mörk skoruð og aðeins tvö fengin á sig. Breiðabliki var spáð sigri í Pepsi-deildinni í ár og byrjunin lofar allavega góðu. Sérstaklega í ljósi þess að Blikar hafa ekki byrjað jafn vel í efstu deild síðan 2005 – árið sem félagið varð síðast Íslandsmeistari. Þá unnu Blikar fyrstu sjö leiki sína með markatölunni 28-5 og voru með 21 stig á toppi deildarinnar, þremur stigum á undan Val. Þegar upp var staðið fékk Breiðablik 40 stig í 14 leikjum árið 2005; vann 13 leiki og gerði eitt jafntefli. Blikar eru þegar búnir að tapa jafn mörgum stigum í ár og allt tímabilið 2005 en miðað við spilamennsku liðsins í sumar er ólíklegt að það tapi mörgum stigum til viðbótar. Aðeins einn leikmaður er eftir í Breiðabliksliðinu frá Íslandsmeistaraárinu 2005. Það er landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir sem kom fyrst inn í lið Breiðabliks sumarið 2005, aðeins 15 ára gömul. Fanndís, sem er markahæst í Pepsi-deildinni í ár, lék þrjá leiki í efstu deild sumarið 2005 og skoraði eitt mark.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira