Boyhoood og Birdman eru líklegar til að fá Golden Globe-verðlaunin 8. janúar 2015 14:30 boyhood Hefur hlotið fjölda verðlauna.
Peter Knegt og Ben Travers, blaðamenn hinnar virtu bandarísku kvikmyndasíðu Indiewire, hafa tekið saman hverjir þeir telja vera líklegustu sigurvegarana á Golden Globe-hátíðinni sem verður haldin á sunnudagskvöld. Besta dramamyndinBoyhoodFoxcatcherThe Imitation GameSelmaThe Theory of Everything Síðustu tvær myndirnar sem sigruðu í þessum flokki, Argo og 12 Years a Slave, hafa báðir hlotið Óskarsverðlaunin sem besta myndin. Samt hefur þetta þó aðeins gerst þrisvar á síðustu tíu árum. Indiewire telur að hin óvenjulega Boyhoood sem gerist á tólf ára tímabili muni bera sigur úr býtum á sunnudaginn. Sú mynd hefur einmitt hlotið mörg verðlaun upp á síðkastið.Besta gaman- eða söngvamyndinBirdmanThe Grand Budapest HotelInto The WoodsPrideSt. Vincent Indiewire telur að Birdman muni vinna í þessum flokki en vill engu að síður að The Grand Budapest Hotel hreppi hnossið.Besta leikkonan í dramaflokkiJennifer Aniston – CakeFelicity Jones – The Theory of EverythingJulianne Moore – Still AliceRosamund Pike – Gone GirlReese Witherspoon – Wild Indiewire telur líklegast að Julianne Moore vinni Golden Globe en heldur engu að síður með Rosamund Pike.Besti leikarinn í dramaflokkiSteve Carell – FoxcatcherBenedict Cumberbatch – The Imitation GameJake Gyllenhaal – NighcrawlerDavid Oyelowo – SelmaEddie Redmayne – The Theory of Everything Indiewire spáir Eddie Redmayne sigri en hann túlkar vísindamanninn Stephen Hawking í The Theory of Everything. Minnstar líkur telja blaðamennirnir á að Gyllenhaal hljóti verðlaunin.Besta leikkonan í gaman- eða söngvamyndAmy Adams – Big EyesEmily Blunt – Into The WoodsHelen Mirren – The Hundred Foot JourneyJulianne Moore – Maps To The StarsQuvenzhane Wallis – Annie Indiwire spáir því að Emily Blunt hreppi hnossið fyrr leik sinn í Into Woods en vonar að Julianne Moore beri frekar sigur úr býtum. Moore er einmitt einnig tilnefnd í dramaflokknum og gæti því hlotið tvenn Golden Globe-verðlaun eins og Kate Winslet gerði eitt sinn.Michael Keaton, sem leikur í Birdman, hefur aldrei áður verið tilnefndur til Golden Globe.Besti leikarinn í gaman- eða söngvamyndRalph Fiennes – The Grand Budapest HotelMichael Keaton – BirdmanBill Murray – St. VincentJoaquin Phoenix – Inherent ViceChristoph Waltz – Big Eyes Indiewire spáir Michael Keaton sigri fyrir hlutverk sitt í Birdman, mynd Alejandros González Iñárritu. Í uppáhaldi hjá blaðamönnunum er samt frammistaða Ralphs Fiennes í The Grand Budapest Hotel. Þess má geta að Keaton hefur aldrei áður hlotið Golden Globe-tilnefningu. Besta tónlistinAlexandre Desplat – The Imitation GameJóhann Jóhannsson – The Theory of EverythingTrent Reznor and Atticus Ross – Gone GirlAntonio Sánchez – BirdmanHans Zimmer – Interstellar Kengt og Travers spá því að Desplat hljóti verðlaunin fyrir The Imitation Game en heldur engu að síður með Antonio Sánchez, sem var ekki gjaldgengur í Óskarinn vegna þeirra reglna sem þar eru viðhafðar. Jóhann Jóhannsson er einnig sagður líklegur til að hljóta verðlaunin.
Bíó og sjónvarp Golden Globes Mest lesið Dóttir Annýjar og Heiðars nefnd í dag Lífið „Þetta er meiri háttar draumur að rætast” Lífið „Sagði börnunum að vondur maður hefði meitt mömmu“ Áskorun Hundur í hjólastól í Sandgerði Lífið „Hvað er Gísli Marteinn gamall?“ Lífið Stuð og stemning á opnun Einars Fals í Þjóðminjasafninu Lífið „Það getur enginn sært þig án þíns samþykkis“ Lífið „Ég var kominn á þann stað að ég þorði ekki að vera með barnið mitt“ Lífið Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Menning Slasaðist við tökur í Bretlandi Lífið Fleiri fréttir Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein