Yndislegt andrúmsloft í Reebok Fitness 30. desember 2015 09:00 Þórdís hefur misst fimmtán kíló síðan hún byrjaði fyrir alvöru að æfa í Reebok Fitness og líður frábærlega í dag. Mynd/Stefán
KYNNING: Þórdís Pétursdóttir byrjaði að æfa af krafti í Reebok Fitness fyrir einu og hálfu ári og hefur náð frábærum árangri, er léttari og hraustari. Hún segist elska að æfa í Reebok Fitness enda sé andinn æðislegur, aðstaðan til fyrirmyndar og þjálfarar ávallt tilbúnir að aðstoða. „Það var sumarið 2014 sem ég ákvað að komast í betra form. Ég hafði átt dálítið erfitt ár þar á undan og sjálfsmyndin léleg. Á þessum tíma var ég þó komin aftur í hamingjusamt samband, var í góðri vinnu og á betri stað í lífinu, og þá langaði mig að bæta líkamlegt ástand mitt líka,“ segir Þórdís sem hafði æft í Reebok í einhvern tíma en ákvað þarna að byrja að æfa fyrir alvöru. „Ég hafði farið í æðislega zumba-tíma hjá Guðnýju Jónu Þórsdóttur. Ég talaði við hana og bað hana um að hjálpa mér að búa til æfingaprógramm og koma skikki á mataræðið,“ segir Þórdís og Guðný fylgdi henni eftir í mánuð, kenndi henni á tækin og studdi hana meðan regla komst á æfingar hennar.Þórdís áður en hún byrjaði að æfa.Afslappað andrúmsloft „Reebok er æðisleg líkamsræktarstöð. Ég hef æft á öðrum stöðum og hefur þá fundist hálfgerð kvöð að fara. En mig langar alltaf að mæta í Reebok og hlakka alltaf til,“ segir Þórdís og telur þar mestu skipta þann létta anda sem ríki í stöðinni. „Þjálfararnir eru mjög vingjarnlegir, heilsa manni alltaf og eru tilbúnir að hjálpa. Þá er fólk af öllu tagi þarna og allt mjög frjálslegt. Maður bara mætir nývaknaður og myglaður með hárið út í loftið og öllum er sama. Maður gerir bara eins og maður getur og enginn mórall í gangi þó fólk falli ekki inn í eitthvert norm,“ lýsir Þórdís. Aðstöðuna segir hún líka til fyrirmyndar. „Hér er alltaf hreint og fínt, tækin frábær og vel við haldið.“Frábærir hóptímar Þórdísi finnst skemmtilegast að fara í hóptíma og finnst þeir veita sér gott aðhald. „Zumba er orðið fastur liður í lífi mínu á mánudögum og miðvikudögum. Þá finnst mér Hot body æðislegir tímar.“ Í maí byrjaði Þórdís á námskeiðinu Bikini body blast og hún hefur sótt nokkur slík síðan. a„Þarna eru stelpur sem vilja komast í betra form. Við hittumst og hvetjum hver aðra áfram undir stjórn snilldarkennara, þeirra Helenu Pereira og Sólveigar Regínu Biard. Við hittumst á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum og tökum rosalega vel á því,“ segir Þórdís en góður hópur hefur myndast á námskeiðunum. „Þetta eru stelpur á fjölbreyttum aldri, ég er yngst, 23 ára, og svo er önnur vel yfir fertugt, og við erum í alls konar formi.“ Þórdís líkir því næstum við að vera með einkaþjálfara að sækja námskeiðið. „Kennararnir eru svo persónulegir og skemmtilegir og svo veitum við stelpurnar hver annarri aðhald.“ Hún segir miklu skipta að hafa einhvern til að hvetja sig áfram. „Ég er svo góð við sjálfa mig ef ég fer ein. Ef ég hef einhvern til að hvetja mig áfram og segja mér að gera tíu æfingar í viðbót þegar ég er alveg að gefast upp þá get ég það alveg. Námskeiðið og hóptímarnir gefa mér því rosalega mikið.“Ef ég gat það geta þetta allir Þórdís mætir sex sinnum í viku í ræktina. „Stundum tek ég tvöfalda tíma en ég hef fyrir reglu að taka einn dag í viku í pásu til að leyfa vöðvunum að jafna sig.“ Þórdís hefur lést um 15 kíló en flest þeirra missti hún fyrsta hálfa árið. „Svo byrjaði ég virkilega að móta vöðvana og styrkjast á Bikini body blast námskeiðinu.“ Þórdísi líður mjög vel með sjálfa sig í dag. „Það er frábært að geta gert hversdagslega hluti sem áður voru erfiðir eins og að hlaupa upp stiga. Sjálfstraustið er líka miklu betra og mér finnst bara frábært og er stolt af að vera sterk stelpa,“ segir hún og hlær. En geta þetta allir? „Já, já, já. Ég var í mjög lélegu formi þegar ég byrjaði og fyrst ég gat þetta þá geta það allir. Það er langerfiðast að byrja að koma sér í rútínu en það er vel þess virði.“
Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira