Rafrettur: 95% skaðlausari en reykingar Guðmundur Karl Snæbjörnsson skrifar 30. desember 2015 07:00 Vegna nýlegra greina í Fréttablaðinu (11. og 19. des. sl.), og var sú síðari eftir tvo kollega mína, þá sé ég mig tilneyddan til að bæta við nokkrum staðreyndum varðandi rafrettur og heilsufarsleg áhrif af notkun þeirra. Mikill og útbreiddur misskilningur virðist vera í umræðunni um hugsanlega slæmar afleiðingar og skaðleg áhrif af notkun rafrettna og verður því reynt að bæta þar úr. Rafrettunotkun miðast eingöngu við reykingafólk sem er að hætta að reykja. Það er ekki ætlun mín heldur að fjalla um skaðsemi reykinga að nokkru marki, þær upplýsingar eiga að liggja frammi í bæklingum á öllum heilsugæslustöðvum landsins og apótekum fyrir þá sem vilja og þurfa á því að halda. Sá boðskapur hefur einnig oftsinnis verið boðaður í gegnum tíðina af ýmsum aðilum, skólum og á öðrum vettvangi og ætti því að vera öllum ljós að einhverju leyti. Ef ekki, náðu þér í bækling og ræddu það við heimilislækninn þinn. Vert er í byrjun að minnast aðeins á nokkrar staðreyndir varðandi sígarettureykingar. Fyrst eru það þó góðu fréttirnar um að síðustu árin hefur dregið stórlega úr sígarettureykingum landans. Það sama á reyndar einnig við um flest lönd hins vestræna heims, en samhliða því hefur notkun rafrettna aukist stórlega. Það er almennt metið svo að sígarettureykingar valdi dauða yfir 400 Íslendinga á hverju ári ef erlendar tölur (sænskar) eru yfirfærðar á Ísland. Einnig er vert að minnast á þá staðreynd að þekkt efni í sígarettum eru um 7.000 og krabbameinsvaldandi efni í þeim eru um 70. Þessar staðreyndir verður að hafa í huga og eru reyndar aðalatriðið þegar rætt er um rafrettur sem valkost í stað sígarettunnar. Þarna felst hinn raunverulegi ávinningur heilsufarslega séð fyrir reykingamanninn og hvatning til að byrja að nota rafrettu í stað sígarettna. Ekki svo lítill ávinningur það. Einstaka fréttir og blaðagreinar hafa upp á síðkastið verið birtar og fjallað um rafrettunotkun með ýmsum hætti. Hafa sumar þeirra verið ansi misvísandi ef ekki bara villandi og jafnvel ruglað fólk í ríminu frekar en upplýst. Hér verður reynt að skýra frá áhrifum rafrettna á líkamann, skaðlegum og ekki skaðlegum áhrifum og sem minnst látið kræla á hræðsluáróðri. Nóg um það í bili. Skellum okkur beint í staðreyndirnar eins og þær eru samkvæmt bestu þekkingu í dag og það fordómalaust. Til að gera framsetninguna eins skýra og kostur er þá verður hér eingöngu stuðst við skýrslu breskra heilbrigðisyfirvalda til grundvallar þessari umfjöllun (PHE, Public Health England, skýrsla þessi er 121 blaðsíða að lengd með uppfærslum og byggð á niðurstöðum 185 rannsókna, helstu vísindarannsókna í heiminum í dag á þessu sviði). Upplýsingar um þessar rannsóknir er að finna í lok skýrslunnar (tengill neðst).Mat á skaðsemi rafrettna er sú að þær eru um 95% öruggari fyrir heilsu okkar en sígarettureykingar og byggist það á eftirfarandi staðreyndum:A. Innihaldsefni innöndunarlofts frá rafrettum sem gætu valdið tjóni á heilsu okkar, þar með talin krabbameinsvaldandi efni, eru annaðhvort ekki til staðar í innöndunarlofti rafrettnanna eða þá að þau eru í svo litlu magni að það er langt undir 5% viðmiðunargildum eða hættumörkum þeirra (í raun eru þau oftast undir 1% viðmiðunargildum og því langt undir varúðarmörkum).B. Aðalinnihaldsefni rafrettna hafa ekki verið tengd við nein skaðleg áhrif á heilsufar fólks. Nokkur litarefni og innihaldsefni rafrettna geta við langtímanotkun hugsanlega valdið einhverjum skaða. Ekkert staðfest um það í dag. Þess vegna er það metið svo að rétt sé að setja vissan fyrirvara upp á 5% vegna hugsanlegs skaða þessara efna.Frekari staðreyndir og ráðleggingar um framhaldið:1. Þá sem hafa reynt að hætta að reykja árangurslaust á að hvetja til að nota rafrettu til að hætta og ábending til heilbrigðisstarfsfólks og annarra stuðningsaðila að einstaklingurinn fái stuðning frá þeim í því ferli.2. Hvetja reykingafólk, sem getur ekki eða vill ekki hætta reykingum, til að skipta yfir í rafrettur og þannig draga úr sjúkdómum tengdum reykingum, dauða og örkumlun sem af þeim hljótast.3. Engar vísbendingar hafa komið fram sem benda til að notkun rafrettna hjá fullorðnum einstaklingum né unglingum hindri eða dragi úr því að fólk hætti að reykja. Frekar benda þær til að hún styðji frekar við þá þróun. Þrátt fyrir að ýmsir (ekki reykingafólk) prófi fyrst notkun nikótíns með rafrettu þá eru það mjög fáir sem síðan leiðast út í langtímanotkun þeirra (<1%).4. Nýlegar rannsóknir styðja einnig fyrri niðurstöðu virtra fagaðila (Cochrane review) um að rafrettur geti hjálpað fólki til að hætta að reykja og draga úr reykingum hjá öðrum. Það er einnig niðurstaða rannsókna að rafrettur geta einnig hjálpað fólki til að hætta reykingum eða dregið úr þeim hjá einstaklingum sem höfðu ekki einsett sér að hætta reykingunum eða höfðu hafnað annarri aðstoð til þess. Frekari rannsókna er þörf á þessu sviði.5. Þegar rafrettur eru notaðar skv. notkunarreglum þá er engin hætta á eitrunum af völdum nikótíninnihalds þeirra. En vökvinn á að sjálfsögðu að vera geymdur í barnheldum umbúðum og varðveittur þar sem börn ná ekki til. Komið hefur í ljós að ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af nákvæmni varðandi réttar merkingar á innihaldi vökvans og magni níkótíns í vökvanum.6. Það hefur gætt mikillar óvissu, aðallega á meðal almennings, varðandi hugsanlega skaðsemi sem rafrettur yllu á heilsu fólks og því jafnvel verið haldið fram að skaðsemi rafrettna væri engu minni en af völdum sígarettna, þrátt fyrir að niðurstöður helstu sérfræðinga á þessu sviði segi að rafrettur séu 95% hættuminni en sígarettur.7. Jafnframt öðrum aðgerðum sem minnst er á hér þá þarf að bæta fræðslu um rafrettur og skaðsemi reykinga. Einnig fyrirbyggjandi starf gagnvart börnum og unglingum með það að markmiði að draga úr eða koma í veg fyrir notkun þeirra á nikótíni sem vímugjafa. Nauðsynlegt er einnig að tryggja bæði gæði vökvans og góða virkni hans. Þetta eru að sjálfsögðu mikilvæg atriði sem þarf að vinna að.8. Reglugerðir sem fjalla um þessi mál ættu að hafa að leiðarljósi og viðmiði sínu hinn gríðarlega ávinning fyrir heilsufar fólks sem notkun rafrettna hefur umfram sígaretturnar.9. Brýnt er að hafa gott eftirlit eins og með öryggisatriðum um notkun rafrettna og styðja við frekari rannsóknir á hugsanlegum skaðlegum áhrifum af þeirra völdum. Hvað svo? Á þetta eitthvert erindi til þín? Ef þú vilt hætta að reykja verður auðvitað mestur ávinningur fyrir bætta heilsu að hætta án nokkurra þeirra hjálparmiðla sem færa þér nikótín áfram. Ef þér tekst það ekki og vilt gera það með hjálp rafrettunnar þá felst einnig í því mikill heilsufarslegur ávinningur, sem auðvitað er einnig ávinningur heilbrigðiskerfisins. Þetta er engin spurning í hugum flestra lækna sem hafa kynnt sér málið eins og sést hér að framan í niðurstöðu breskra heilbrigðisyfirvalda og bestu sérfræðiþekkingu í dag. Gott markmið til að byrja með er að vera ekki að reyna að hætta í sígarettunum strax. Það er að sjálfsögðu hægt líka. En oft er betra að gefa þessu smá tíma, t.d. í byrjun að bæta við notkun rafrettu í svona 1-2 vikur þangað til þú sleppir sígarettunum alveg. Einnig er gott að einsetja sér að taka alltaf 1-4 sog fyrir hverja sígarettu og þá færðu ekkert út úr sígarettunni þegar kemur að henni. Sú tilfinning venst oftast fljótt. Þetta er aftur á móti fyrir flesta ekkert hókus pókus og allt búið og hætt(ur) svona allt í einu að reykja. Þetta er langferð, en auðvitað vel þess virði. Gangi þér vel og gott nýtt ár með bættri heilsu. Tengill á skýrslu breskra heilbrigðisyfirvalda, PHE: https://www.gov.uk/government/publications/e-cigarettes-an-evidence-update Fyrirvari: höfundur hefur engra hagsmuna að gæta varðandi innflutning eða sölu á rafrettum, né tengsl við framleiðendur eða seljendur hefðbundinna tóbaksvara. Höfundur hefur aftur á móti bæði beinna og óbeinna hagsmuna að gæta gagnvart sjúklingum sem þjást af ýmsum sjúkdómum af völdum reykinga. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Rafrettur Mest lesið Hugleiðingar um virðismat kennara Bergur Hauksson Skoðun Áslaug Arna er framtíðin Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson Skoðun Minning fórnarlamba helfararinnar svívirt Einar Ólafsson Skoðun Hvar stendur barnið mitt í námi? Helga Sigurrós Valgeirsdóttir Skoðun Óverðtryggð húsnæðislán til 25 ára Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Háskóli á heimsmælikvarða - Silju Báru í rektorinn! Erlingur Erlingsson Skoðun Er Inga Sæland Þjófur? Birgir Dýrfjörð Skoðun Er tantra einungis um kynlíf? Rajan Parrikar Skoðun Alþjóðlegir straumar í menntamálum: Valdeflum kennara Kolbrún Þ. Pálsdóttir Skoðun Er samfélagslegt stórslys í uppsiglingu? Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Fjárfestum í vegakerfinu Stefán Broddi Guðjónsson skrifar Skoðun Vandi Háskóla Ísland og lausnir – I – stéttarfélög Pétur Henry Petersen skrifar Skoðun Skjánotkun foreldra - tímarnir breytast og tengslin með? Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun Til þjónustu reiðubúin í Garðabæ Almar Guðmundsson skrifar Skoðun Vindmyllugarðar í einkaeigu ekki hagkvæmir fyrir almenning Hildur Þórðardóttir,Stefanía Gísladóttir skrifar Skoðun Tilvistarkreppa leikskólakennara? Helga Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nauðgunarmál, 2. grein. Upplýsingar fást ekki Jörgen Ingimar Hansson skrifar Skoðun Ekki láta aðra kjósa fyrir þig Flosi Eiríksson skrifar Skoðun Er tantra einungis um kynlíf? Rajan Parrikar skrifar Skoðun Óverðtryggð húsnæðislán til 25 ára Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Alþjóðlegir straumar í menntamálum: Valdeflum kennara Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Háskóli á heimsmælikvarða - Silju Báru í rektorinn! Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um virðismat kennara Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hvar stendur barnið mitt í námi? Helga Sigurrós Valgeirsdóttir skrifar Skoðun Áslaug Arna er framtíðin Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson skrifar Skoðun Minning fórnarlamba helfararinnar svívirt Einar Ólafsson skrifar Skoðun Minna af þér og meira af öðrum Heiða Björk Sturludóttir skrifar Skoðun Að byggja upp öfluga og flotta leikskóla til framtíðar Ísabella Markan skrifar Skoðun Að koma skriðdreka á Snæfellsnes Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ræstitækni ehf.: Fríríki atvinnurekandans Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Er samfélagslegt stórslys í uppsiglingu? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Skiptir hugarfarið máli? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að hafa alla með okkur í liði Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Verkfærakistan er alltaf opin Ástþór Ólafsson skrifar Skoðun Píratar til forystu Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Beðið fyrir verðbólgu Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Minni pólitík, meiri fagmennska Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Ný krydd í skuldasúpuna Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Ferðasjóður ÍSÍ hefur rýrnað frá árinu 2019 Heimir Örn Árnason skrifar Sjá meira
Áslaug Arna er framtíðin Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson Skoðun
Skoðun Vindmyllugarðar í einkaeigu ekki hagkvæmir fyrir almenning Hildur Þórðardóttir,Stefanía Gísladóttir skrifar
Skoðun Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Áslaug Arna er framtíðin Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson skrifar
Áslaug Arna er framtíðin Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson Skoðun