Spá yfir 20 stiga frosti í Reykjavík á jóladag Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. desember 2015 22:35 Það ætti að vera hægt að renna sér á skautum á Tjörninni um jólin. vísir/daníel
Afar kalt verður um land allt á aðfangadag og jóladag ef marka má veðurspá Veðurstofu Íslands. Þannig er spáð 11 stiga frosti í Reykjavík klukkan 18 á aðfangadag, 15 stiga frosti á Patreksfirði, 10 stiga frosti á Akureyri og 9 stiga frosti á Kirkjubæjarklaustri. Á hádegi á jóladag er svo spáð hvorki meira né minna en 21 stiga frosti í Reykjavík. „Já, það er kuldakast að skella á landinu. Frostið harðnar á aðfangadag en ætli það verði ekki kaldast á jóladag og jafnvel á annan í jólum,“ segir Haraldur Eiríksson, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Þá er spáð snjókomu víða um land dagana fyrir jól, meðal annars á suðvesturhorninu, en Haraldur segir að það verði þó ekki álíka fannfergi á höfuðborgarsvæðinu og var í byrjun mánaðarins. Það verður að mestu þurrt á Suður-og Suðvesturlandi á aðfangadag en búast má við lítilsháttar snjókomu á Norður-og Austurlandi samkvæmt spánni. Á jóladag er svo spáð norðlægri eða breytilegri átt og bjart með köflum, en él við norðausturströndina og einnig syðst á landinu.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Innlent Margeir stefnir ríkinu Innlent Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Erlent Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Innlent Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Innlent „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Innlent Kjóstu rétt á Vísi Innlent Fleiri fréttir Ríkislögreglustjóri beinir sjónum sínum að leynilegri upptöku Tilefni til að kanna hvort ráðherra hafi farið á svig við siðareglur Hundruð umsókna frá bændum vegna tjóns í kuldatíð í vor og sumar Margeir stefnir ríkinu Kjóstu rétt á Vísi Þakplötur fuku af hlöðu í Aðaldal Setja hundrað milljónir í barnavernd í Mosó Skora á Alþingi að bæta stöðu Kvikmyndasjóðs Enginn formlegur sáttafundur í tíu daga Leikskólakennarar á Nesinu fjölmenntu til fundar við bæjarstjóra Búast má við frekari vegalokunum þegar byrjar aftur að rigna Samgöngur og neysluvatn að komast í samt lag Pallborðið: Hvalveiðafár og skóla- og heilbrigðismál Hafa opnað veginn um Eyrarhlíð á ný Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Reyna að hreinsa vatnsbólið á Flateyri eftir hádegi Búið að opna veginn um Ísafjarðardjúp Engin bein tilmæli um breytingar á meðan endurskoðun stendur Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Foreldrafélag MR segist virða kröfur kennara en gagnrýnir verkfall Vegir enn lokaðir á Vestfjörðum Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Sjá meira