Hátíðarþáttamaraþonið er formlega hafið Guðrún Ansnes skrifar 28. desember 2015 14:00 Nokkrir dagar eru til stefnu, og þá er kjörið að nýta til almennrar leti sem leyfist sjaldan utan jóla. vísir/getty
Þó svo að aðfangadagur og jóladagur hafi runnið sitt skeið er hátíðin ennþá í blússandi gangi sem slík, og margir hverjir í verðskulduðu jólafríi, aðrir tvinna saman gleðina við vinnu með tilheyrandi sjálfsdekri milli stríða. Fyrir alla þá sem ætla sér að slaka á til hins ýtrasta er gráupplagt að henda sér í sófann og taka vel valið þáttamaraþon. Hvort sem fólk ætlar sér að kanna nýjar lendur eða róa á gömul mið er nokkuð víst að af nógu er að taka. Vísir ætlar að auka enn frekar á leti lesenda og deilir hér með hugmyndum að skotheldum þáttaröðum sem ættu að fá flesta til að vilja halda sig í náttbuxunum þar til á nýju ári.Flesh and BoneFlesh and bone Hæfileikarík ballettdansmær, Claire Robbins, flytur til New York með ansi skrautlega fortíð á bakinu, þar sem hún lendir í klikkuðum aðstæðum innan ballettsenunnar. Í stuttu máli flækist Robbins inn í hringiðu Paul Grayson, stjórnanda the American Ballet Company, þar sem drama á drama ofan virðist eiga sér stað og átök í hverju horni. Þættirnir fóru í loftið í nóvember á þessu ári og hafa fengið glimrandi dóma. Þættirnir eru sýndir á Stöð 2 á miðvikudagskvöldum.IMDb: 8,1Allir kátir hér.ShamelessDramablandnir grínþættir þar sem alkóhólistinn Frank Gallagher ásamt sex manna fjölskyldu reynir að halda friðinn með tilheyrandi árekstrum. Persónur þáttanna eru einstaklega skrautlegar, svo það er auðvelt að festast í þessum. Þegar eru komnar út sex seríur sem vel er hægt að gleyma sér í dágóða stund. Þessir þættir verða svo sýndir á Stöð 2 eftir áramót, en fyrri seríur hafa einmitt verið sýndar á sömu stöð.IMDb: 8,7Mr. Robot Ungur forritari sem þjáist af félagsfælni og alls konar öðrum kvillum kemur sér upp skuggalegum tengslum innan raða tölvuhakkara, sem hann nýtir sér svo til anarkískra aðgerða og felur sig á bak við dulnefnið Mr. Robot. Þættir sem koma á óvart, og vaxa hratt í vinsældum.IMDb: 8,9Ofurhetja sem skiptir um starfsvettvang, auðvitað.Jessica Jones Þættir byggðir á einni ofurhetju Marvel, Jessicu Jones, sem eftir dágóða lægð í ofurhetjubransanum ákveður að venda kvæði sínu í kross og gerast einkaspæjari. Kjörin sería fyrir hasar-, glæpa- og dramaþáttaaðdáendur. IMDb: 8,5Escobar hefur hrifið heimsbyggðina með sér í þessum þáttum.NarcosÞættir sem eru byggðir á sannri sögu kólumbíska kókaínbarónsins Pablo Escobar og segja frá hvernig kókaín dreifðist hratt og örugglega út um allan heim fyrir tilstilli kauða. Einni seríu er lokið og þeir eru ófáir sem telja þessa þætti þá bestu á árinu. Önnur sería er rétt handan við hornið.IMDb: 9,0Making a Murderer ætlar allt um koll að keyra.Making a Murderer Heimildaþáttasería sem er tekin á tíu ára tímabili. Serían reynir að varpa ljósi á spillingu innan lögreglustjóraembættisins í í Manitowoc-sýslu og segir frá lífi Stevens Avery, Bandaríkjamanns sem sat í inni í 18 ár fyrir nauðgun, en Making a Murderer hefur verið borin saman við þættina The Jinx og hlaðvarpið Serial sem hljóta að teljast ansi góð meðmæli.IMDb: 9,4Hverskyns morðþættir eiga greinilega uppá pallborðið hjá áhorfendum um þessar mundir.How to Get Away with Murder Bandarísk sjónvarpsþáttasería sem segir frá lögfræðingnum Annalise Keating sem ásamt fimm nemendum sínum flækist inn í morðmál. Komnar eru út tvær seríur af How to Get Away with Murder svo það er hægt að sökkva sér ofan tuttugu og fjóra þætti af lögfræðidrama með jólakonfektinu.IMDb: 8,3The Jinx: The Life and Deaths of Robert Durst Heimildaþáttaröð sem vakti heldur betur athygli á árinu og hlaut mikið lof. Í þáttunum er kafað ofan í mannshvarf frá árinu 1982, óhugnanleg morð á rithöfundinum Susan Berman árið 2000 og Morris Black árið 2001. Þáttaröðin hefur vakið mikla athygli fyrir að vera einstaklega vel klippt og halda áhorfendum á sætisbrúninni allt til loka. Við mælum samt með að njóta hennar í þægilegum sófa eða stól. Þess ber að geta að þessa þætti má nálgast afar löglega inn á Stöð 2 Maraþon. IMDb: 8,9FargoFargo Stórskemmtileg þáttasería sem gerð er upp úr samnefndri kvikmynd frá árinu 1996. Fyrri serían vann til dæmis til fjölda Emmy-verðlauna og einnig vann Billy Bob Thornton til Golden Globe-verðlauna fyrir leik sinn. Í seinni seríunni var öllum leikurunum skipt út og spólað um þrjátíu ár aftur í tímann.IMDb: 9,0
Bíó og sjónvarp Golden Globes Tengdar fréttir Sakamálið varð að þáttaröð og svo aftur að sakamáli Auðkýfingurinn Robert Durst, sem sakaður er um að hafa myrt að minnsta kosti tvær konur og einn karl sem honum tengdust, er nú kominn aftur í fangelsi. Hann var til ummfjöllunar í vinsælli þáttaröð á HBO. 30. apríl 2015 11:00 Mest lesið Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Bíó og sjónvarp Beyonce, Charli xcx og Kendrick Lamar sópa að sér tilnefningum Lífið Niðurgangurinn á Þingvöllum þaggaður niður Lífið Rómantík í loftinu hjá Sveindísi Jane Lífið Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Menning Fagnar átta árum án hugbreytandi efna Lífið „Sigmundur Davíð gerði ekki shit þegar hann var forsætisráðherra“ Lífið Hlustar á Taylor Swift og elskar The Kardashians Lífið Tæki Brynjar Níels með í bústaðinn Lífið Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Menning Fleiri fréttir Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Hrekkjavökumyndir til að hafa í huga fyrir kvöldið Ulf Pilgaard er látinn Vilja gefa út síðustu þættina með Payne Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó Paradís heiðrað af blindum Hollywood stjörnur við Höfða Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Lýsir augnablikinu þegar hann náði Örnu á sitt band Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Torfi vinnur að því að koma Minecraft á hvíta tjaldið Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Super Happy Forever hlaut Gullna lundann Fagnaðarfundir þegar Bong Joon-Ho hitti Dag Kára Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Sjá meira
Sakamálið varð að þáttaröð og svo aftur að sakamáli Auðkýfingurinn Robert Durst, sem sakaður er um að hafa myrt að minnsta kosti tvær konur og einn karl sem honum tengdust, er nú kominn aftur í fangelsi. Hann var til ummfjöllunar í vinsælli þáttaröð á HBO. 30. apríl 2015 11:00