Þess vegna vantreystir þjóðin Alþingi Þröstur Ólafsson skrifar 27. nóvember 2015 07:00 Þjóðir vinna stríð eða tapa þeim. Þar fær enginn önnur verðlaun. List stjórnmálanna er hins vegar þríþætt. Hún liggur í sókn, tilslökun og síðan í málamiðlun. Stjórnmálamenn í lýðræðisríki sem leggja mál þannig upp að málamiðlun sé útilokuð, lenda óhjákvæmilega í átökum og að jafnaði gera þeir meiri óskunda en gagn. Í ríkisstjórn Jóhönnu bar mikið á heilagri sannfæringu einstakra alþingismanna, sem ekki þoldi neinn afslátt, enda voru lyktir þeirrar ríkisstjórnar heldur snautlegar. Þótt hrunið hafi vissulega átt sér erlenda tilsvörun, var það engu að síður íslensk hönnun. Það voru ekki bara bankamennirnir sem biluðu heldur brást einnig stjórnmálakerfi okkar. Alþingi, kjarni kerfisins, skarst úr leik, og áfallið lét ekki á sér standa. Heimssagan hermir að pólitísk stóráföll megi oft rekja til bresta í stjórnmálakerfi eða menningu. Þegar ríkisstjórnir og þjóðþing verða ofurseld blindri hugmyndafræði eða trúarórum, sem leyfa hvorki tilslökun né málamiðlun, er ófarnaður á næsta leiti. Öfgafyllsta dæmi slíks ástands er saga Þýskalands á fyrri helmingi síðustu aldar. Við Íslendingar flæktumst einnig í hugmyndafræðilegar hafvillur á áratugnum fyrir hrunið. Hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar, sem var stýrikerfi stjórnvalda, opnaði allar gáttir fyrir hyggjulitlum bankamönnum og gróðabröllurum. Því fór sem fór. Þjóðverjar kölluðu hafvillu sína Þýsku leiðina. Íslendingar töluðu um Íslensku útrásina, sem rakin var til víkinganna. Þar væri á ferð arfgeng, þjóðleg snilligáfa, sem aðrar þjóðir mættu taka sér til fyrirmyndar. Hvorug þjóðin sá hvílík hélog þær eltu og enduðu báðar í hruni, sín á hvorum tíma. Átök um almannahagsmuni Pólitískt upplausnarástand á líka upptök sín í illrjúfanlegum tengslum voldugra hagsmunahópa við stjórnmálin. Í þróunarferli flestra Evrópuríkja má finna lengri og skemmri tímabil, þar sem sérhagsmunir einstakra stétta eða þjóðfélagshópa mótuðu stefnu landstjórnarinnar. Oftast endaði það í stórátökum, þegar sérhagsmunir verndaðir af ríkisvaldinu rákust á almannahagsmuni, sem landslýður reyndi að ná fram. Hér nægir að nefna almennan og jafnan kosningarétt en einnig pólitískt varin forréttindi, einkum og sér í lagi skattaleg og viðskiptaleg. Það þurfti tvær heimsstyrjaldir til að brjóta niður ofurvöld iðnaðarbarónanna við Ruhr og prússnesku Júnkeranna. Keimlíkt ástand, þó á míní mælikvarða, þekkjum við Íslendingar. Sjávarútvegur og landbúnaður hafa í gegnum pólitísk völd sín geirneglt sérhagsmuni sína, sem ósjaldan ganga í berhögg við almannahagsmuni. Landbúnaðinum leyfist að halda þjóðinni í bóndabeygju offramleiðslu, innflutningshafta, eftirlitslausra styrkja og örlátra niðurgreiðslna. Óþarfi er að ræða skattaleg forréttindi útgerðarmanna við nánast ókeypis nýtingu fiskimiðanna og lagalega varið fjárfestingabann útlendinga. Því má einnig bæta við að Íslendingar búa enn við ójafnan kosningarétt, þótt hann sé orðinn almennur. Íslensk stjórnmál eru enn gegnsýrð af forréttindum auðlindaatvinnuvega og dreifbýlis. Alþingi og skipulagðir sérhagsmunir Pólitíska óreiðu má einnig rekja til vanhæfi þeirra sem sitja á þingi. Sagnfræðingar sumir telja sig geta rakið ofstopann sem leiddi til ofbeldis og hryðjuverka frönsku byltingarinnar til skorts á praktískri menntun og reynslu meðlima franska þjóðþingsins. Meðlimir þess voru ýmist stofuspekingar og hugmyndafræðingar en í besta falli lögfræðingar. Þarna voru hópar ófyrirleitinna málflutningsmanna úr dreifbýlinu og margs konar undanvillingar úr forréttindahópum samfélagsins. Þingið komst að þeirri niðurstöðu, að til að koma á réttlátu samfélagi þyrfti að afhenda lægstu stéttunum öll völd. Þær nýttu þau síðan til að útrýma eignarréttinum að mestu og afmáðu þar með eina mikilvægustu forsendu frelsisins. Þótt við Íslendingar höfum aldrei gengið í gegnum viðlíka tíma, þá er því ekki að neita, að Alþingi virðist einnig ofsetið af fólki sem lítið erindi á þangað. Alþingi þarf að vera staður opinnar rökræðu, pólitískra skoðanaskipta og þroskaðra viðhorfa. Þess í stað er Alþingi í alltof ríkum mæli staður þar sem fulltrúar skipulagðra sérhagsmuna, í fylgd gaumlausra meðhlaupara, ráða ferðinni. Umræða, sem ber öll einkenni þess, að stór hluti þingmanna telji sig skuldbundinn til að halda uppi vörnum og sókn fyrir sérhagsmuni auðlindarekenda í andstöðu við almannahagsmuni, kallar fram óvægnar andstæður og skörp átök. Þar af leiðandi glatar þingið hæfni sinni til að geta laðað fram pólitíska samfylgd, búið til málamiðlun, staðið undir nafni sem pólitísk samkoma allrar þjóðarinnar, ekki bara samtaka auðlindarekenda til sjávar og sveita. Þetta er alvarleg brotalöm í stjórnmálakerfi okkar. Þess vegna vantreystir þjóðin Alþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þröstur Ólafsson Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Sjá meira