Willian með frábært sigurmark fyrir Chelsea | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2015 21:45 Willian fagnar sigurmarki sínu. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Willian var maðurinn á bak við mikilvægan 2-1 sigur Chelsea á úkraínska liðinu Dynamo Kiev í 4. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Willian lagði upp fyrra markið og skoraði síðan það seinna með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu. Aleksandar Dragovic, leikmaður Dynamo Kiev, náði því að skora í bæði mörkin í leiknum en hann kom Chelsea yfir með því að setja boltann í eigið mark en náði svo að bæta fyrir það. Sigurinn kemur lærisveinum Jose Mourinho upp í sjö stig og í annað sæti riðilsins en liðið hefur nú tveggja stiga forskot á Dynamo Kiev sem er í þriðja sætinu. Fyrri hálfleikurinn á Stamford Bridge bauð ekki upp á mikil tilþrif og það var sjálfsmark sem skildi á milli liðanna í hálfleik. Chelsea hafði heppnina með sér á 34. mínútu leiksins þegar Aleksandar Dragovic skallaði boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf frá Willian. Aleksandar Dragovic bætti fyrir mistökin þegar hann jafnaði metin á 78. mínútu en markið kom eftir hornspyrnu. Það liðu bara fimm mínútur þar til að Willian kom Chelsea aftur yfir og það frábæra mark beint úr aukaspyrnu reyndist síðan vera sigurmarkið í leiknum.Heppnin með Chelsea í fyrsta markinu Nú skoraði Dragovic í rétt mark Sigurmark Willian
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira