„Við létum slagorðin glymja yfir allt Stjórnarráðið,“ útskýrir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, en Vísir náði tali af honum strax að kröfufundi loknum nú rétt fyrir 10. Hann fór fremstur í flokki þar sem gangan gekk niður Laugaveginn. „Ég sá mikla göngu fyrir aftan mig. Það var góð mæting og góð stemning í þessu. Þetta er kjarnafólk,“ segir Árni.
Sjá einnig: Bakslag í samningaviðræðum veldur formönnum hugarangri
„Það voru náttúrulega lögreglumenn í göngunni, sex til sjö mótorhjólamenn fyrir framan mig og svo öskruðum við þetta niður Laugaveginn: „Sömu kjarabætur og aðrir ríkisstarfsmenn.“ Þetta glumdi alveg um allt, en ég held reyndar að það hafi verið fáir að hlusta nema túristarnir.“

Ráðherrar stöldruðu ekki við til þess að ræða við hópinn að sögn Árna. „Nei, nei þau settu frekar undir sig hausinn og löbbuðu inn, buðu góðan daginn samt og svona. Eygló kom að vísu seinna þegar við vorum búin að slíta fundi og spjallaði aðeins.“
Sjá einnig: „Höfum sjaldan séð það verra“
Hnútur kom á viðræðurnar í gær
Nú stendur yfir annað ótímabundna verkfallið í verkfallshrinum SFR og sjúkraliða. Eins og kunnugt er geta lögreglumenn ekki farið í verkfall en svokölluð samstöðupest gerði vart við sig í fyrra ótímabundna verkfallinu sem stóð yfir 15. – 16. október og því mættu fjölmargir þeirra ekki til vinnu.

„Það kom í ljós að þegar við komum þarna klukkan eitt í gær vorum við full bjartsýn að þetta myndi ganga áfram,“ viðurkennir Árni Stefán. Samninganefndirnar funduðu um helgina og lauk þeim viðræðum á góðum nótum að mati Árna, báðir aðilar lögðu fram tillögur sem skoðaðar voru gaumgæfilega og samningsvilji ríkti. En þegar samninganefndir Árna og félaga mættu í gær kom babb í bátinn sem þurfti að leysa.
Sjá einnig: Víða lokaðar dyr vegna verkfalls: „Gömlu fólki er gert afskaplega erfitt fyrir“
Árni getur ekki gefið efnislegar útskýringar á meðan aðilar sitja enn við samningaborð. „Það kom smá bakslag í þetta sem setti hnút á viðræðurnar í allan gærdag. Okkur tókst að vísu að leysa þennan hnút seint í gærkvöldi áður en við hættum. Það þurfti að leysa þennan hnút til að geta haldið áfram og því var lítið annað hægt að gera í gær.“
Árni býst því við að haldið verði áfram á svipuðum slóðum og um helgina. Hann mætir í öllu falli jákvæður til leiks og finnst sem samninganefnd geri það líka. „Bjarni [Benediktsson fjármálaráðherra] hefur líka tekið þannig til orða að við séum í alvöru viðræðum og ég get alveg tekið undir þau orð. Það eru engar hindranir í veginum í dag og við ættum að geta haldið áfram.“