Veszprém vill fá Patrek Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. október 2015 16:32 Patrekur Jóhannesson skildi við Hauka sem Íslandsmeistara. vísir/andri marinó
Patrekur Jóhannesson, þjálfari austurríska landsliðsins í handbolta, kemur sterklega til greina sem næsti þjálfari ungverska stórliðsins MKB Veszprém. Samkvæmt heimildum Vísis hefur framkvæmdastjóri Veszprém haft samband við Patrek sem gerði Hauka að Íslandsmeisturum síðasta vor áður en hann ákvað að einbeita sér alfarið að austuríska landsliðinu. Með Veszprém leikur Aron Pálmarsson, stórskytta íslenska landsliðsins, en ungverska liðið sagði þjálfaranum Carlos Ortega upp störfum eftir tap gegn Wisla Plock í Meistaradeildinni fyrir tveimur vikum. Þjóðverjarnir Martin Schwalb, fyrrverandi þjálfari Hamburg SV og Króatarnir Lino Cervar og Slavko Goluza, hafa báðir verið orðaðir við Veszprém að undanförnu en nú virðist Patrekur líklegastur til að fá starfið. Patrekur hefur þjálfað austurríska landsliðið undanfarin ár og er óvíst hvort hann geti haldið því áfram fái hann starfið hjá Veszprém. MKB Veszprém er einn af risunum í evrópskum handbolta, en liðið einokar titilinn heima fyrir. Það hefur unnið deildina í Ungverjalandi undanfarin átta ár og 22 sinnum í heildina. Veszprém á eftir að vinna Meistaradeildina, en liðið komst í úrslit 2002 og 2005 auk þess sem það komst í undanúrslit 2003, 2006 og 2014. Liið hefur þó unnið Evrópukeppni bikarhafa í tvígang.
Handbolti Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira