IFK Göteborg hefur áhuga á Höskuldi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. september 2015 11:30 Höskuldur gæti verið á leið í atvinnumennsku eftir tímabilið. vísir/anton
Samkvæmt Aftonbladet hefur IFK Göteborg, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, áhuga á Höskuldi Gunnlaugssyni, leikmanni Breiðabliks. Göteborg býr sig undir mögulegt brotthvarf danska kantmannsins Sören Rieks í næsta félagaskiptaglugga en Höskuldur er einn af þeim sem gætu fyllt hans skarð. „Ég ætla ekki að trufla Sören á þessari stundu en við munum ræða málin eftir að tímabilinu lýkur,“ sagði Fredrik Risp, umboðsmaður Rieks, í samtali við Aftonbladet. Mats Gren, íþróttastjóri Göteborg, viðurkennir að félagið hafi augastað á Höskuldi en njósnari félagsins horfði á leiki U-21 árs landsliðsins fyrr í þessum mánuði þar sem Höskuldur var í eldlínunni. „Við höfum fylgst með Höskuldi en hann er ekki sá eini sem við erum með í sigtinu. Þetta var gott tækifæri til að sjá tvo leiki með U-21 árs landsliðinu og einn með A-landsliðinu,“ sagði Gren við Aftonbladet. Höskuldur fékk eldskírn sína í Pepsi-deildinni í fyrra og hefur svo slegið í gegn í ár. Höskuldur, sem er fæddur árið 1994, hefur skorað sex mörk í 17 deildarleikjum með Breiðabliki í sumar en liðið er í 2. sæti Pepsi-deildarinnar. Þá hefur Höskuldur leikið fjóra leiki fyrir U-21 árs landsliðið og skorað tvö mörk.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Íslenski boltinn Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fótbolti Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg Handbolti Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Handbolti Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Handbolti Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Handbolti Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Handbolti Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Fleiri fréttir Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Sjá meira