Fjallað verður stuttlega um hvert verk fyrir sýningu en umfjöllunarefni myndanna er allt frá óhugnanlegum aukaverkunum í kjölfar skurðaðgerðar, sálfræðingi sem prufar nýjar aðferðir á sjúklingum sínum og vísindamanni sem breytist í flugu en myndir hans fjalla oft og tíðum á myrkan hátt um eðli mannsins og eru líkami mannsins, umbreytingar og sýkingar algeng umfjöllunarefni.
„Hann er eitt af stærstu nöfnunum sem komið hafa sem heiðursgestir á RIFF, alveg gríðarstór biti,“ segir Gunnar Hansson kynningarfulltrúi hátíðarinnar í ár.
Á miðnæturmaraþoninu, sem fram fer þann 25. september í Bíó Paradís verða þrjár af myndum Cronenberg sýndar. innig verður svokallað Q&A þar sem leikstjórinn svara spurningum áhorfenda en nánar verður tilkynnt um tímasetningu þess síðar.

Hann segir það hafa verið talsverða áskorun að velja einungis þrjár myndir til að sýna á marþoninu, enda af nægu að taka. „Það var úr vöndu að velja. Þetta er náttúrulega Midnight Madness og við ætlum að enda á The Fly, hún mun kannski ræna fólk svefninum þessa nótt,“ segir Gunnar og bætir við að Cronenberg sé sérstaklega laginn við að skapa andrúmsloft sem halda áhorfendanum föngnum.
Þann 30. september mun leikstjórinn Marteinn Þórsson stjórna Meistaraspjalli við Cronenberg í Hátíðarsal Háskóla Íslands sem hefst klukkan 13.00. „Ég stjórna umræðunni eitthvað, kynni hann og fer aðeins fyrir ferilinn. Ég ætla nú að leyfa honum bara að tjá sig. Maður þarf ekekrt að draga úr honum svörin. Hann er vel lesinn. Gáfaður maður og viðkunnalegur," segir Marteinn sem segir vissulega spennandi fyrir kvikmyndaáhugamenn að fá tækifæri til þess að spyrja leikstjórann spjörunum úr.
RIFF hefst þann 24. september næstkomandi og allar nánari upplýsingar um hátíðina má nálgast á vefsíðunni Riff.is.