„Markmiðið í dag var að ná ráspól svo ég er afar kátur. Bíllinn hefur verið í góðu jafnvægi og það skiptir miklu máli hér,“ sagði Hamilton sem ræsir fremstur á morgun.
„Auðvitað er ég vonsvikinn. Ég missti smá hraða á þriðju æfingunni en við náðum að vinna hann aðeins til baka. Það er nóg af tækifærum á morgun og ég er vongóður fyrir keppnina,“ sagði Nico Rosberg sem ræsir annar á morgun.
„Bíllinn var bara góður frá upphafi tímatökunnar, ég náði góðum hringjum í þriðju lotu og gat því náð þriðja sæti á ráslínu. Það small allt saman hjá okkur í dag,“ sagði Valtteri Bottas sem ræsir þriðji á morgun.
„Við áttum góðan dag, að mestu leyti Valtteri stóð sig mjög vel. Ferrari átti ekki góðan dag og við græðum á því en við þurfum að skapa okkar eigin gæfu,“ sagði Rob Smedley.
„Ég fór ekki út af eða neitt, það kom mér á óvart hvað ég var hægur. Markmiðið er að ná góðri ræsingu og reyna að vinna upp einhver sæti á fyrsta hring. Þetta er löng keppni og úrlsit hennar ákvarðast ekki á fyrsta hring,“ sagði Sebastian Vettel sem verður níundi á ráslínunni í Ferrari bílnum á morgun.
Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport á morgun, sunnudag.
Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar, þau uppfærast eftir því sem líður á.