„Við erum góðum höndum og í góðum félagsskap. Versatile hefur góðar myndir á sýnum snærum þar á meðal er verðlaunamyndir frá þessu ári frá Berlin og Cannes,“ segir Rúnar Rúnarsson leikstjóri og einn framleiðanda myndarinnar.
„Þau eru búin að vera í góðu sambandi við okkur alveg síðan á handrit stigi og þau hafa verið að ná frábærum árangri með myndirnar sýnar undanfarinn ár og erum við himinlifandi að vera í samstarfi við þau.”
Í síðustu viku voru Rúnar og nýju samstarfsaðilarnir staddir í Haugasundi á hinum árlega Norræna kvikmyndamarkaði.
„Um lokaðar markaðssýningar var að ræða en einstaka fjölmiðlar náðu víst að lauma sér inn,” segir Rúnar.

Þrestir er dramatísk mynd sem fjallar um 16 ára pilt, sem sendur er á æskustöðvarnar vestur á firði til að búa með föður sínum sem hann hefur ekki séð í ein sex ár.
Í aðalhlutverkum eru Atli Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sigurdsson, Rakel Björk Björnsdóttir , Kristbjörg Kjeld og Rade Serbedzija.Tónlist myndarinnar er samin af Kjartani Sveinssyni.
Þrestir eru framleiddir af Nimbus Ísland og Nimbus film í samvinnu við Pegasus og MPfilms. Myndin er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands, danska kvikmyndasjóðnum, norrænukvikmynda- og sjónvarpssjóðnum, króatíska kvikmyndasjóðnum, Iðnaðarráðuneytinu og í samvinnu við Senu, RÚV, TV2 í Danmörku og SF í Danmörku. Þrestir koma í almennar sýningar 16. október á vegum Senu.