Aðeins eitt ár frá síðasta bikarmeistaratitli KR-inga | Myndband Kristinn Páll Teitsson skrifar 14. ágúst 2015 15:00
KR mætir Val í úrslitum Borgunarbikarsins á morgun en KR-ingar hafa átt góðu gengi að fagna í bikarúrslitunum undanfarin ár. KR fær tækifæri á að verja bikarmeistaratitilinn en Vesturbæjarliðið vann 2-1 sigur á Keflavík í fyrra. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik tóku KR-ingar yfir. Það var þó ekki fyrr en í uppbótartíma sem þeim tókst að skora sigurmarkið, en þar var að verki Kjartan Henry Finnbogason eftir sendingu frá Gary Martin. Keflavík komst yfir eftir tæplega korter þegar Hörður Sveinsson nýtti sér varnarmistök KR-inga. Frans Elvarsson komst inn í sendingu Grétars Sigfinns Sigurðarssonar, renndi boltanum inn á Hörð sem lagði boltann framhjá Stefáni Loga Magnússyni í marki KR. KR-ingar voru hins vegar ekki lengi að jafna metin. Óskar Örn tók hornspyrnu frá hægri, þar skallaði Gary boltann inn á markteiginn, á Grétar sem kom boltanum yfir línuna og jafnaði metin í 1-1. Eftir jöfnunarmarkið náðu KR-ingar tökum á leiknum en gekk illa að skapa færi og tókst ekki að bæta við marki. Virtist leikurinn því ætla að fara í framlengingu þegar Kjartan Henry skoraði sigurmark KR í uppbótartíma seinni hálfleiks. Gary fékk þá boltann hægra megin í vítateignum eftir fyrirgjöf Óskars Arnars og skaut honum fyrir markið á Kjartan Henry sem stóð nánast á línunni. Kjartan Henry hitti boltann ekkert sérstaklega vel, en yfir línuna fór hann og tryggði KR-ingum titilinn stuttu fyrir leikslok. Aðeins tveimur mínútum síðar flautaði Garðar Örn Hinriksson, dómari leiksins, til leiksloka og KR-ingar gátu fagnað bikarmeistaratitlinum. Þeim fjórtánda í heildina og fjórða á síðustu sjö árum og síðasta titli Rúnars Kristinssonar sem þjálfari KR.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik Fótbolti Arsenal að missa menn í meiðsli Fótbolti Fyrsti þjálfarinn í NBA fokinn Körfubolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina Íslenski boltinn Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Skotar og Danir spila úrslitaleik um farseðil á HM Sport Jón Axel gat ekki komið í veg fyrir tap Körfubolti Þungavigtin: Mike hefur miklar áhyggjur af því að KR falli í körfunni Körfubolti Vigdís Lilja á skotskónum Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira