Spá um lítilsháttar slyddu á Akureyri ber að taka með fyrirvara Birgir Olgeirsson skrifar 13. júlí 2015 11:48 Akureyringar gætu þurft að draga fram úlpurnar fyrir helgi. Vísir/Pjetur
Fremur svalt verður í veðri um komandi helgi ef marka má veðurspá Veðurstofu Íslands. Svo svalt að á miðnætti á laugardag er spáð eins stigs hita á Akureyri og jafnvel lítilsháttar slyddu. Haraldur Eiríksson, vaktaveðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir þó að taka verði þessari spá um lítilsháttar slyddu á Akureyri með fyrirvara. „Það er norðan átt um helgina en það er líklegast að þetta verði rigning á láglendi. Það getur slyddað til fjalla og á hálendinu, það er líklegra,“ segir Haraldur í samtali við Vísi um málið. Hann segir lítið um hlýindi yfir landinu þegar horft er rúma viku fram í tímann. „Maður sér engin hlýindi. Það er milt loft yfir okkur í dag og á morgun. En út af vætunni er ekkert sérstaklega hlýtt. Svo er hann að halla sér meira í norðanátt um helgina. Þá sígur hitinn bara niður.“Veðurhorfur næstu daga:Norðaustan 5-13 m/s, en hægari breytileg átt SV-til. Víða rigning, einkum um landið S- og A-vert. Dregur úr rigningunni síðdegis á morgun. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á SV-landi.Á miðvikudag og fimmtudag:Norðaustan og austan 3-8 m/s. Skýjað en úrkomulítið N- og A-lands og hiti 7 til 12 stig. Bjart með köflum á S- og V-landi, en líkur á stöku skúrum síðdegis. Hiti að 17 stigum.Á föstudag:Norðan 3-8 og skýjað, en víða léttskýjað á SV- og V-landi. Hiti 12 til 17 stig, en 5 til 10 stig N- og A-lands.Á laugardag:Norðlæg átt, skýjað með köflum og dálítil rigning NA-til. Hiti breytist lítið.Á sunnudag:Norðanátt og rigning N- og A-lands, annars úrkomulítið.
Veður Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira