Strákarnir hans Ólafs Kristjáns ennþá í sumarfríi í upphafi leiks Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2015 17:59 Ólafur Kristjánsson sést hér stýra liði Nordsjælland. Vísir/Getty
Nordsjælland tapaði 2-0 á heimavelli á móti SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en þetta var fyrsti leikur liðanna á nýju tímabili. Lærisveinar Ólafs Kristjánssonar í Nordsjælland virtust vera enn í sumarfríi í byrjun leiks því SönderjyskE skoraði bæði mörkin sín á fyrstu sextán mínútum leiksins. Þetta reyndust síðan vera einu mörkin sem voru skoruð á Farum Park í í kvöld. Danski reynsluboltinn Thomas Dalgaard var þarna að leika sinn fyrsta mótsleik eftir að hann gekk til liðs við SönderjyskE og hann hélt upp á það með því að skora tvö mörk, á 10. og 16. mínútu leiksins. Adam Örn Arnarson lék allan tímann í hægri bakvarðarstöðu Nordsjælland en Rúnar Alex Rúnarsson er áfram varamarkvörður liðsins. Guðjón Baldvinsson er farinn frá Nordsjælland og kominn heim til að spila með Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Hinn 34 ára gamli Jakob Michelsen stýrði liði SönderjyskE þarna í sínum fyrsta mótleiks eftir að hann tók við af Lars Söndergaard og hann byrjar mjög vel með liðið. Nordsjælland var mun meira með boltann (58 prósent - 42 prósent) en SönderjyskE-liðið átti hinsvegar mun fleiri skot á mark (8 á móti 3). Nordsjælland endaði í 6. sæti á fyrsta ári liðsins undir stjórn Ólafs en SönderjyskE varð í 10. sæti í fyrra. Nordsjælland byrjaði síðasta tímabil vel og var sem dæmi í 2. sæti eftir ellefu umferðir.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Sjá meira