Kólnandi veður og gera ráð fyrir slyddu til fjalla Birgir Olgeirsson skrifar 7. júlí 2015 17:59 Búast má við köldum nóttum á hálendinu. Vísir/Vilhelm
Nú spáir kólnandi veðri sem skrifast á norðan áttina sem dregur kalt heimskautaloft til landsins og má búast við slyddu til fjalla á morgun. Þeir sem stefna á ferðalag upp á hálendið á næstu dögum geta átt von á köldum nóttum ef gista á í tjaldi. Á morgun má gera ráð fyrir norðan og norðvestan átt, þremur til átta metrum á sekúndu, og rigningu á austurhelmingi landsins seinnipartinn. Yfirleitt þó bjartviðri annars staðar. Hiti 6 - 18 stig að deginum, hlýjast um suðvestanvert landið. Kalt í innsveitum norðanlands í nótt. Á fimmtudag er búist við norðlægri átt, 3 - 10 metrum á sekúndu. Skýjað og dálítil væta fyrir norðan og austan, jafnvel slydda til fjalla. Annars bjartviðri á köflum. Hiti 5 - 15 stig, hlýjast suðvestanlands, en kaldast á norðanverðu landinu. Á föstudag verður norðaustlæg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu. Tiltölulega skýjað og úrkoma á víð og dreif, síst þó á Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á laugardag má búast við norðaustan átt, 10 - 15 metrum á sekúndu, með suðausturströndinni og norðvestanlands en hægari vindur annars staðar. Rigning suðaustan- og austanlands, annars þurrt að mestu og bjartviðri á köflum vestanlands. Hlýnar heldur í veðri. Á sunnudag og mánudag verður áframhald á norðaustlægum áttum með vætu öðru hverju norðan- og austanlands, en björtum köflum suðvestan- og vestanlands. Hiti 6 til 16 stig mildast á Suðvesturlandi.
Veður Mest lesið Nýtt hljóðmerki bílaeigendum til ama Innlent Kom Kolaportinu fyrir horn og leitar nú langtímalausna Innlent Fimm handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fann nítján dauðar gæsir í Vatnsmýrinni Innlent Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu Innlent Völlurinn geti orðið ónothæfur á köflum Innlent Styrktartónleikar á Hvolsvelli fyrir mikið slasaðan bónda Innlent „Stórkostlega undarlegt“ að þekktir gerendur séu ekki ákærðir Innlent Asískir ferðamenn virðist meðvitaðir þátttakendur í bókunarsvindli Innlent Kiðlingarnir Frosti og Snær bræða alla í kringum sig Innlent Fleiri fréttir Kom Kolaportinu fyrir horn og leitar nú langtímalausna Nýtt hljóðmerki bílaeigendum til ama Kiðlingarnir Frosti og Snær bræða alla í kringum sig Fann nítján dauðar gæsir í Vatnsmýrinni Völlurinn geti orðið ónothæfur á köflum Fimm handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri „Stórkostlega undarlegt“ að þekktir gerendur séu ekki ákærðir Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu Áhyggjur Icelandair af lokun flugbrautar og óþrjótandi píp-hljóð Mikilvægt að nýr formaður hafi breiða skírskotun Íbúar í Garði ósáttir við uppbyggingu á þekktu flóðasvæði Danir hafi sofnað á verðinum og Trump að hræra í pottinum Styrktartónleikar á Hvolsvelli fyrir mikið slasaðan bónda „Mogginn er ekki flokksblað Framsóknarflokksins“ Þrýstingur innan Framsóknar og veik staða Rússlands „Hrikalegir“ biðlistar hjá golfklúbbum í höfuðborginni Áhrif milljarðamæringa, áhugi á Grænlandi og brotthvarf Bjarna Kostnaður við nýja sánuklefa í Vesturbæ um 130 milljónir Lögreglan hljóp uppi ólátabelg í nótt Kristrún á forsíðu Guardian: „Velferðarríki með ríkissjóð réttu megin við núllið“ Vill að hægt verði að afturkalla alþjóðlega vernd „Ákæruvaldið þarf að útskýra þetta“ Ný leið fyrir ferðamenn með átta eldfjöllum Segir mótmælin ólögmæt og bótaskyldu til skoðunar Íbúar upplifa sig svikna af Icelandair Meint ólögmæt mótmæli og alþjóðleg vernd Þungt hljóð í sálfræðingum sem felldu samning í gær Stjórn Virðingar mótmælir ósönnum fullyrðingum í fjölmiðlum Fiskibátur í neyð í mynni Ólafsfjarðar Asískir ferðamenn virðist meðvitaðir þátttakendur í bókunarsvindli Sjá meira