Golden State vann Memphis auðveldlega og komst í 1-0 Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. maí 2015 07:00
Golden State Warriors vann auðveldan sigur á Memphis Grizzlies, 101-86, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Golden State skoraði 32 stig í fyrsta leikhluta sem það vann með sjö stigum og leit aldrei um öxl. Gestirnir frá Memphis voru númeri of litlir í nótt. Stephen Curry fór fyrir sínum mönnum, en hann skoraði 22 stig, gaf sjö stoðsendingar og stal fjórum boltum. Það helsta með honum má sjá í spilaranum hér að ofan. Klay Thompson bætti við 18 stigum fyrir heimamenn auk þess sem hann gaf sex stoðsendingar. Hjá Memphis voru stóru mennirnir undir körfunni allt í öllu. Marc Gasol skoraði 21 stig og tók níu fráköst, en Zach Randolph skoraði 20 stig og tók einnig níu fráköst. Eins og svo oft áður var þriggja stiga nýting Golden State til mikillar fyrirmyndar, en liðið skaut 46,4 prósent fyrir utan línuna. Stephen Curry setti niður fjóra þrista úr átta skotum og það sama gerði Draymond Green. Memphis hélt sig inn í teig, en það hitti aðeins úr 25 prósent þriggja stiga skota sinna.Glæsileg sending Currys:
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira