Glæsimörk Suarez sáu um PSG | Sjáðu mörkin 15. apríl 2015 15:57 Lionel Messi fagnar með Neymar. vísir/getty
Barcelona er svo gott sem komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 3-1 sigur liðsins á PSG í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar. Þetta var fyrri leikur liðanna en hann fór fram í París. Liðin mætast í Barcelona í næstu viku en Parísarliðið, sem var án Zlatan Ibrahimovic í kvöld, þarf þá á kraftaverki að halda. Ibrahimovic var í banni í kvöld en getur spilað með í síðari leiknum. Neymar kom Barcelona á bragðið á 18. mínútu leiksins er hann afgreiddi boltann í netið eftir sendingu Lionel Messi. Luis Suarez tók svo leikinn í sínar hendur um miðjan síðari hálfleikinn er hann skoraði tvívegis með skömmu millibili. Fyrst eftir frábæran sprett í gegnum vörn PSG og svo með glæsilegu skoti eftir að hafa „klobbað“ David Luiz, varnarmann PSG. Gregory van der Wiel náði að minnka muninn fyrir PSG og gefa þeim frönsku örlitla von en skot hans fór af Jeremy Mathieu, varnarmanni Barcelona. Suarez hefur nú skorað þrettán mörk í síðustu fimmtán leikjum sínum með Barcelona. Allt útlit er að Barcelona sé á leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar í sjöunda sinn á síðustu átta árum.Neymar kom Bayern yfir á 18. mínútu: Luis Suarez skoraði annað mark Barcelona á 67. mínútu: Luis Suarez skoraði aftur á 79. mínútu: Gregory van der Wiel skoraði fyrir PSG:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira