Knicks tapað 60 leikjum í vetur | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 29. mars 2015 11:46 Það er vesen á New York Knicks. vísir/getty
New York Knicks heldur áfram að tapa leikjum í NBA-körfuboltanum, en í nótt töpuðu þeir 60. leiknum sínum í vetur. Þeir töpuðu þá fyrir Chicago Bulls með 30 stigum, 111-80. Þeir hafa einungis unnið fjórtán af 74 leikjum sínum í vetur sem er hörmulegur árangur. Andrea Bargnani skoraði flest stigin fyrir Knicks eða 14 talsins, en hann tók einnig sjö fráköst. Hjá Chicago var það Nikola Mirotic sem var stigahæstur með 24 stig. Paul Gasol tók fimmtán fráköst. Þetta var þriðji sigur Chicago í röð sem er öruggt í úrslitakeppnina. Russell Westbrook fór einu sinni sem oftar á kostum í liði Oklahoma, en hann skoraði 37 stig og gaf sex stoðsendingar í fimm stiga tapi Oklahoma gegn Utah, 89-94. Trey Burke var stigahæstur Utah-manna með 22 stig. Annað tap Oklahoma í röð staðreynd. Golden State vann 60. sigur sinn í vetur þegar liðið bar sigur úr býtur gegn Milwaukee. Stephen Curry heldur áfram að spila frábærlega fyrir Golden State, en hann skoraði 25 stig. Khris Middleton gerði 14 stig fyrir Milwaukee. Portland vann þriðja leik sinn í röð með 120-114 sigri á Denver. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og mikið hitt. Jameer Elson gerði 22 stig fyrir Denver, en LaMarcus Aldridge dró vagninn fyrir Portland. Hann gerði 32 stig og tók ellefu fráköst.Öll úrslit næturinnar: Atlanta - Charlotte 100-115 New York - Chicago 80-111 Golden State - Milwaukee 108-95 Oklahoma City - Utah 89-94 Denver - Portland 114-120Topp-5 í nótt: LaMarcus var í stuði: 'Buzzer!':
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira