Fótbolti

Þjálfari Bandaríkjanna tók gagnrýni Freys eftir leik illa

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Freyr Alexandersson gagnrýndi spilamennsku Bandaríkjanna.
Freyr Alexandersson gagnrýndi spilamennsku Bandaríkjanna. vísir/ksí/stefán
„Bandaríkin valda vonbrigðum með markalausu jafntefli gegn Ísland á Algarve-mótinu,“ segir í fyrirsögn á vef Fox Sports um leik Íslands og Bandaríkjanna í gær.

Eftir tvö töp á Algarve-mótinu náðu stelpurnar okkar í frábært jafntefli gegn liðinu sem er í öðru sæti heimslistans og líklegt til afreka á HM í Kanada í sumar.

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari Íslands, gagnrýndi spilamennsku bandaríska liðsins eftir leik sem fór ekki vel í þjálfara Bandaríkjanna og blaðamann Fox Sports.

„Þjálfari íslenska landsliðsins ákvað bara, að það væri í lagi að tala frekar illa um bandaríska liðið,“ segir í greininni.

„Ef þetta væri mitt lið væri ég mjög óánægður,“ sagði Freyr um Bandaríkin sem spörkuðu boltanum mikið langt fram völlinn.

„Við neyddum þær til að sparka langt eftir að hafa horft á fyrstu tvo leiki Bandaríkjanna. Þar sáum við að þegar þau lenda undir pressu vill liðið sparka langt fram.“

„Ég skil þetta ekki því liðið getur spilað boltanum eftir grasinu. Ég myndi nú búast við því að lið sem er 20 sætum fyrir ofan okkur á heimslistanum myndi rústa okkur.“

Blaðamaður Fox Sports tekur í raun undir orð Freys: „Svona var þetta. Bandaríkin reyndu að sparka boltanum yfir og í kringum ákveðið lið Íslands og þurfti að sætta sig við jafntefli. Það átti ekki að gerast,“ segir í greininni.

Bandaríska liðið fær mikla gagnrýni fyrir spilamennsku sína og þjálfari þess, Jill Ellis, fær ekki háa einkunn fyrir að skilja þrjá af bestu leikmönnum liðsins eftir á bekknum.

Ellis var heldur ekkert hrifin af gagnrýni Freys og svaraði henni þegar orð íslenska þjálfarans voru borin upp á hana.

„Kannski er hann bara fúll því liðið hans er á botni riðilsins,“ sagði Ellis og bætti við að hún var á endanum ánægð með jafntefli eftir barsmíðarnar sem bandaríska liðið fékk af hálfu þess íslenska.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×