Búist við stormi um allt land í dag Stefán Árni Pálsson skrifar 4. mars 2015 07:16 Þá er reiknað með hviðum 30-40 m/s undir Hafnafjalli og á Kjalarnesi á frá því laust fyrir hádegi. Snjóflóðahætta er á Siglufjarðarvegi. vísir/valli
Hvessa mun með morgninum sunnan- og vestanlands með snjókomu, einkum á fjallvegum, en síðar slyddu eða rigningu á láglendi. Þetta kemur fram í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Þá er búist er við stormi á landinu um og eftir hádegi, en NV-til og við SA-ströndina í nótt og á morgun. Þannig eru líkur á að mjög blint verði og dimm ofanhríð á veginum austur fyrir Fjall frá því um hádegi og þar til skil lægðarinnar verða farin yfir á milli klukkan fimm og sex síðdegis. Þá er reiknað með hviðum 30-40 m/s undir Hafnafjalli og á Kjalarnesi á frá því laust fyrir hádegi. Snjóflóðahætta er á Siglufjarðarvegi. Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir er allvíða á Suðurlandi. Á Vesturlandi eru hálkublettir en hálka á fjallvegum og í Svínadal. Þæfingur og skafrenningur er á Fróðárheiði. Hálka eða snjóþekja er nánast á öllum á vegum á Vestfjörðum, þó aðeins hálkublettir á Innstrandavegi. Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum og éljagangur og skafrenningur nokkuð víða. Þæfingsfærð er á Tjörnesi og í Bakkafirði en ófært á Hólasandi og Hófaskarði. Siglufjarðarvegur er lokaður utan Fljóta vegna snjóflóðahættu. Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði. Annars er hálka eða hálkublettir á vegum á Austurlandi. Greiðfært er frá Breiðdalsvík með suðausturströndinni vestur undir Öræfi en þar tekur við hálka og hálkublettir.
Veður Mest lesið Nýtt hljóðmerki bílaeigendum til ama Innlent Kom Kolaportinu fyrir horn og leitar nú langtímalausna Innlent Nefndir þingsins að taka á sig mynd Innlent Tjón varð á yfir 20 bifreiðum vegna hola í höfuðborginni Innlent Utankjörfundaratkvæði dagaði uppi á bæjarskrifstofum Kópavogs Innlent Fimm handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fann nítján dauðar gæsir í Vatnsmýrinni Innlent Völlurinn geti orðið ónothæfur á köflum Innlent Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu Innlent „Stórkostlega undarlegt“ að þekktir gerendur séu ekki ákærðir Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundaratkvæði dagaði uppi á bæjarskrifstofum Kópavogs Einelti, óvelkomnir og öskur í heimahúsi Tjón varð á yfir 20 bifreiðum vegna hola í höfuðborginni Nefndir þingsins að taka á sig mynd Kom Kolaportinu fyrir horn og leitar nú langtímalausna Nýtt hljóðmerki bílaeigendum til ama Kiðlingarnir Frosti og Snær bræða alla í kringum sig Fann nítján dauðar gæsir í Vatnsmýrinni Völlurinn geti orðið ónothæfur á köflum Fimm handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri „Stórkostlega undarlegt“ að þekktir gerendur séu ekki ákærðir Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu Áhyggjur Icelandair af lokun flugbrautar og óþrjótandi píp-hljóð Mikilvægt að nýr formaður hafi breiða skírskotun Íbúar í Garði ósáttir við uppbyggingu á þekktu flóðasvæði Danir hafi sofnað á verðinum og Trump að hræra í pottinum Styrktartónleikar á Hvolsvelli fyrir mikið slasaðan bónda „Mogginn er ekki flokksblað Framsóknarflokksins“ Þrýstingur innan Framsóknar og veik staða Rússlands „Hrikalegir“ biðlistar hjá golfklúbbum í höfuðborginni Áhrif milljarðamæringa, áhugi á Grænlandi og brotthvarf Bjarna Kostnaður við nýja sánuklefa í Vesturbæ um 130 milljónir Lögreglan hljóp uppi ólátabelg í nótt Kristrún á forsíðu Guardian: „Velferðarríki með ríkissjóð réttu megin við núllið“ Vill að hægt verði að afturkalla alþjóðlega vernd „Ákæruvaldið þarf að útskýra þetta“ Ný leið fyrir ferðamenn með átta eldfjöllum Segir mótmælin ólögmæt og bótaskyldu til skoðunar Íbúar upplifa sig svikna af Icelandair Meint ólögmæt mótmæli og alþjóðleg vernd Sjá meira