"Gott að losna við Josh Smith" áhrifin virka vel í Detroit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2015 19:15 Leikmenn Detroit Pistons fagna hér sigri í nótt. Vísir/AP
Detroit Pistons liðið fagnaði í nótt sínum sjötta sigri í röð þegar liðið vann 105-104 sigur á meisturum San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta. Detroit Pistons hefur þar með unnið alla sex leiki sína frá 22. desember eða síðan að liðið lét Josh Smith fara en hann var langlaunahæsti leikmaður liðsins. Það eru liðin næstum því sex ár síðan að Pistons-liðið vann sex leiki í röð og liðið var aðeins búið að vinna 5 af 29 leikjum sínum á tímabilinu með Josh Smith innanborðs. Josh Smith er þekktur fyrir slæmt skotval og lélega skotnýtingu en hann var með 13,1 stig að meðaltali í leik í leikjum sínum með Detroit í vetur. Josh Smith samdi við Houston Rockets eftir að Detroit lét hann fara. Skotnýting Detroit-liðsins hefur batnað mjög mikið við það að losna við slæmu skotin hjá Josh Smith. Liðið er með 107,8 stig í leik, 49 prósent skotnýtingu og 40 prósent þriggja stiga nýtingu í þessum sex leikjum en fyrir brottför Smith skoraði liðið 94,4 stig í leik, nýtti 41 prósent skota sinna og 33 prósent þriggja stiga skotanna. Næsti leikur Detroit Pistons er á móti Dallas Mavericks sem hefur líka unnið sex leiki í röð.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira