Lífið

Martin neyddur til að semja lag

Chris Martin samdi lag fyrir nýjustu mynd Jolie, Unbroken.
Chris Martin samdi lag fyrir nýjustu mynd Jolie, Unbroken. Vísir/Getty
Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, segir í gríni að Brad Pitt og Angelina Jolie hafi rænt honum og neytt hann til að semja lag fyrir mynd hennar, Unbroken.

„Ég fékk skilaboð sem á stóð: „Hittumst á þessum leynda stað. Það verður bundið fyrir augu þín og sjö fyrrverandi sjóliðar sækja þig.“ Þannig að þeir rændu mér, lömdu mig í hausinn og settu piparúða í augun á mér. Þegar ég vaknaði var ég inni á skrifstofu og Brad Pitt var að gera armbeygjur á meðan Angelina Jolie sat þarna með kórónuna sína,“ sagði söngvarinn léttur.

„Þarna var líka náungi sem hélt hníf að hálsinum á mér og hún [Jolie] sagði: „Semdu fyrir mig lag, annars.“ Og Brad Pitt sagði: „Já, það sem hún sagði“,“ bætti Martin við. Jolie leikstýrði myndinni, sem gerist í síðari heimsstyrjöldinni, en Coen-bræður sömdu handritið. Hún verður frumsýnd á jóladag vestanhafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.