„Síðan lentum við í því að gefa þessu fólki eiginhandaráritanir“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 10. september 2014 10:00 Baldvin segir Vonarstræti hafa fengið góðar viðtökur í Toronto. vísir/vilhelm „
Þetta var ógeðslega gaman og gekk ótrúlega vel. Ég hefði aldrei búist við því að þetta yrði svona frábært,“ segir leikstjórinn Baldvin Z. Kvikmynd hans, Vonarstræti, eða Life in a Fishbowl eins og hún heitir á ensku, var tekin til sýningar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í Kanada sem nú stendur yfir. Baldvin kom heim til Íslands í gær og er enn í skýjunum yfir viðtökunum á hátíðinni. „Ég var viðstaddur tvær sýningar og það var troðfullt á þeim báðum. Það var mikið klappað í lokin og eftir þær var langur tími þar sem við svöruðum spurningum áhorfenda. Ég hef oft verið viðstaddur spurningar og svör en hef aldrei lent í því eins og þarna að það var klappað við sum svörin. Þarna var líka eldra fólk en maður er vanur að hitta í bíói og spurningarnar voru þroskaðar og flottar. Síðan lentum við í því að gefa þessu fólki eiginhandaráritanir eftir á og það var mjög gaman,“ segir hann. Vonarstræti hefur skapað talsvert umtal hið ytra og hefur sýningarrétturinn nú þegar selst til Kanada, Danmerkur og Noregs. Þá eru samningaviðræður í gangi við Bandaríkin, Þýskaland, Sviss og Japan. Baldvin segist hafa fundið vel fyrir þessu umtali í Toronto. „Við gerum okkur samt ekki vonir um neitt. Það er bara extra frábært að myndin veki umtal.“ Leikstjórinn kunni vel við sig á hátíðinni. „Það voru allir svo kurteisir og skemmtilegir og allir komnir til að njóta bíómyndanna. Svo er líka gaman að fylgjast með fólkinu sem er að fylgjast með fræga fólkinu. Það kemur með vatnsbrúsa og stóla og er greinilega vel þjálfað í því að sjá fræga fólkið.“Hera Hilmarsdóttir í hlutverki sínu í Vonarstræti.vísirDarren Aronofsky bjargaði deginum Leikstjórinn og Íslandsvinurinn Darren Aronofsky sá Vonarstræti í Toronto og var ekki lengi að tísta jákvæð orð um myndina. „Frábær mynd frá #Íslandi á @TIFF_NET Vonarstræti. Frábærir, íslenskir leikarar í mynd um líf sem skarast sem var fönguð á tilfinninganæman hátt,“ tísti Darren. „Þetta tíst bjargaði deginum mínum á þessari hátíð,“ segir Baldvin Z. „Hann hefur sennilega verið á seinni sýningunni en við tókum ekki eftir honum. Hann tvítaði um leið og sýningin var búin og ég er hálffeginn að hafa ekki vitað af honum. Þá hefði ég örugglega verið mjög vandræðalegur eftir á,“ bætir hann við.a really good film out of #Iceland is @TIFF_NET Life in a Fishbowl. great Icelandic actors in a sensitive captured portrait of crossed lives — darren aronofsky (@DarrenAronofsky) September 7, 2014
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Töfrandi litir í Toronto Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto í Kanada hófst þann 4. september og lýkur 14. september. 10. september 2014 11:30 Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Fleiri fréttir Dick van Dyke á hundrað ára afmæli Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Nágrannar kveðja endanlega í dag Lawrence og Hutcherson snúa aftur í Hungurleikana Ósáttur við framhaldið: „Skildu ekki hvað gerði þá fyrstu sérstaka“ „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira
Töfrandi litir í Toronto Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto í Kanada hófst þann 4. september og lýkur 14. september. 10. september 2014 11:30