Þjálfari Tyrklands: Mikil pressa á okkur Kristinn Páll Teitsson skrifar 9. september 2014 06:00 Terim þungur á brún á fundinum í gær. fréttablaðið/anton
Fatih Terim, þjálfari tyrkneska landsliðsins, á von á gríðarlega erfiðum leik í kvöld Terim segist muna eftir því að leika hérna sem leikmaður. „Íslenska liðið er mjög sterkt líkamlega. Markmiðið er að byrja þetta vel og ég vona bara að leikmenn mínir gefi allt í þetta. Það má ekki gleyma því að Ísland er með lið sem komst lengra en við í síðustu undankeppni og er með marga leikmenn sem spila í stærstu deildum heims. Það gæti reynst þeim vel að þeir eru flestir komnir af stað á tímabilinu en mínir leikmenn eru að byrja tímabilið,“ sagði Terim, sem ber mikla virðingu fyrir íslenska liðinu. „Þeir eru teknískari en þeir voru áður svo við þurfum að gæta okkur vel á þeim. Þessir leikmenn eru allir að spila á stóra sviðinu og þeir eru stoltir af landi sínu og þjóð og vilja gera Íslendinga stolta af þeim. Í brúnni er svo Lars Lagerbäck sem ég ber mikla virðingu fyrir. Við erum með metnaðarfullt lið sem vinnur vel saman Það er mikil pressa á okkur heiman frá. Eftir að hafa misst af tveimur stórmótum í röð er gerð krafa að við komumst á EM í Frakklandi,“ en að lokum var Terim spurður hvort hann óttaðist að eldgosið myndi hafa áhrif á leikinn. „Ég hef litlar áhyggjur af þessu, við getum ekkert gert í þessu nema bara að fara á morgun og spila.“
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Í beinni: Southampton - Liverpool | Rauði herinn marserar áfram Enski boltinn Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Southampton - Liverpool | Rauði herinn marserar áfram Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Sjá meira