Í myndinni leikur Björn Thors Huga, mann sem hefur fundið sér skjól frá flækjum lífsins í litlu, kyrrlátu þorpi úti á landi. Þegar hann fær símhringingu frá föður sínum, sem leikinn er af Helga Björnssyni, kemst þetta einfalda líf í uppnám. Auk þess fer Nanna Kristín Magnúsdóttir með veigamikið hlutverk í myndinni en tónlistin er í höndum Prins Póló.
Myndin var að mestu tekin upp á Flateyri og segir Hafsteinn að tökurnar hafi gengið eins og í sögu.
„Það myndaðist ótrúlega góður andi sem gerist oft þegar fólk fer út úr sínu daglega umhverfi til að vinna að sameiginlegu markmiði. Ég var umkringdur góðu fólki og bæjarbúar voru allir af vilja gerðir,“ segir leikstjórinn. Hann er hvað þekktastur fyrir kvikmyndina Á annan veg, sem endurgerð var vestan hafs undir titlinum Prince Avalanche í leikstjórn Davids Gordon Green. Í París norðursins líkt og Á annan veg eru fáir karakterar í aðalhlutverki.
„Mér finnst gott að gefa persónum tíma og gefa áhorfendum tíma með persónum upp á að kynnast þeim og geta dýpkað þær enn frekar. Ég vil fara lengra með fáar persónur í staðinn fyrir að kynna margar stutt til sögunnar. Mér finnst áhugavert að kanna samband persónanna og þær sjálfar,“ segir Hafsteinn.

Hafsteinn hefur einnig vakið talsverða athygli fyrir leikstjórn og segir David Gordon Green meðal annars í samtali við vefrit Dazed & Confused að Hafsteinn sé einn af tíu kvikmyndagerðarmönnum í heiminum sem vert sé að fylgjast með. Hafsteinn er að vonum ánægður með þessi viðbrögð.
„Það er frábært þegar fólk tekur vel í verkin manns og upplifur þau sterkt. Ég er mjög þakklátur fyrir það.“