Samstarf lykillinn að árangri 26. ágúst 2014 16:30 Aart Schalk, sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs Tölvumiðlunar segir gott samstarf við viðskiptavini lykilinn að velgengni Tölvumiðlunar. mynd/stefán
Tölvumiðlun er eitt elsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins og fagnar 30 ára afmæli á næsta ári. Hjá Tölvumiðlun starfar samhentur hópur sérfræðinga, sem þjónustar hundruð ánægða notendur H3 launa- og mannauðslausnarinnar auk annarra hugbúnaðarkerfa. Tölvumiðlun hefur í gegnum árin haft einstaklega gott lag á því að þróa lausnir og þjónustu í takt við kröfur og væntingar markaðarins. Það gerist með góðu og nánu samstarfi við lykilviðskiptavini sem hafa metnað fyrir því að þróa lausnir Tölvumiðlunar og ná sem mestu út úr þeim hverju sinni,“ útskýrir Aart Schalk, sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs Tölvumiðlunar. Hann segir þetta nána samstarf lykilinn að velgengni Tölvumiðlunar í síbreytilegu viðskiptaumhverfi síðustu 30 ára en Tölvumiðlun var stofnuð árið 1985. „Við höfum einnig ávallt haft mjög öflugan hóp sérfræðinga innanborðs til þess að stýra framþróun, forrita, prófa og þjónustu. Við erum mjög þakklát fyrir það að eiga framsækna viðskiptavini og frábært starfsfólk. Einnig leggjum við mikla áherslu á góða stjórnunarhætti og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem öllum líður vel.“Hvað er H3-hugbúnaðarkerfi? „H3-heildarlausnin er öflugt verkfæri við utanumhald mannauðsmála svo sem launa, ráðninga, fræðslu, launaáætlana og við almennt eftirlit með lykilstærðum. H3-mannauðslausnin tekur í raun á öllum þáttum mannauðsstjórnunar frá starfsumsókn til starfsloka,“ útskýrir Aart. „Kerfið samanstendur af nokkrum kerfiseiningum og viðbótum sem viðskiptavinir raða saman eftir umfangi og þörfum á hverjum tíma. Allar kerfiseiningar í H3 eru samþættar. Þannig er komið í veg fyrir tvískráningu upplýsinga og breytingar þarf því aðeins að framkvæma einu sinni. Gögn flæða milli kerfiseininga og ólíkir notendur fá þannig mismunandi sýn á sömu gögnin. Til er sérhæft viðmót ætlað starfsmönnum og annað fyrir stjórnendur. H3 er staðlað kerfi sem hentar óbreytt þörfum flest allra fyrirtækja á íslenskum markaði.“Hvað er í gangi hjá Tölvumiðlun? Hvað er nýtt? „Hafin er vinna við að uppfæra viðskiptavini sem nota H3-heildarlausnina í H3-2013 sem keyrir á SQL Server, á meðan eldri útgáfan er á Oracle“ segir Aart. „Helstu kostir SQL server eru auknir möguleikar í viðskiptagreind og samhæfni við önnur Microsoft-kerfi og umhverfi sem flest íslensk fyrirtæki eru með.“ „Með H3-2013 koma einnig margar nýjungar í virkni og notendaviðmóti. H3-samþættingar er ný kerfiseining sem tengir saman gögn og upplýsingar á milli kerfa, svo sem H3 og MS Active Directory, og sparar þannig tíma og fyrirhöfn við innslátt og minnkar villuhættu. H3-ráðningum fylgir nú nýr ráðningavefur sem auðvelt er að laga að aðalvef fyrirtækja, og betrumbætt viðmót mannauðsstjóra og stjórnenda býður upp á gríðarlega flotta möguleika við flokkun og umsýslu umsókna. Talsverðar breytingar hafa orðið á H3-áætlunum.“ „Önnur áhugaverð nýjung hjá okkur er H3-launavinnsla, sem hugsuð er fyrir aðila sem vilja úthýsa umsýslu launa til fagaðila,“ segir Aart. „Þetta er hentugt fyrir fyrirtæki sem vilja ekki ráða í heila stöðu fyrir launavinnslu heldur einbeita sér að kjarnastarfsemi. Þetta er frábær viðbót við launavinnslu í afleysingum sem við höfum boðið upp á í mörg ár.“ Nánari upplýsingar er að finna á www.tolvumidlun.is.
Mest lesið Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Sleppir ekki pítsunum þrátt fyrir eitt óhappatilvik Neytendur Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent