Skoðun

Af fundarsetu bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi

Margrét Lind Ólafsdóttir skrifar
Það var aldeilis áhugaverð frétt í Morgunblaðinu sunnudaginn 29. mars um bæjarstjórnarfundi á Seltjarnarnesi en þar kemur fram að fundirnir séu yfirleitt mjög stuttir. Þetta er allt gott og blessað og er það svo að bæjarmál eru þess eðlis að meiri- og minnihluti vinna sameiginlega að hagsmunum bæjarbúa og eins og fram kemur þá fer mikið starf fram innan nefndanna. Við í Samfylkingunni fögnum því sem vel er gert og vinnum svo sannarlega með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

Það er hins vegar ekki ávallt þannig að við séum sammála um málefni eða hvernig staðið er að þeim og þykir mér þessi fréttaflutningur ákaflega einhliða og óneitanlega veltir maður fyrir sér hvort tilgangurinn hefur verið sá einn að hampa meirihluta bæjarstjórnar Seltjarnarness, þ.e. Sjálfstæðisflokknum, þar sem ekkert var rætt við minnihlutann við gerð þessarar fréttar.

Það er í raun látið í það skína að við séum sammála um allt og að engin ágreiningsmál séu til staðar. Það er nú ekki alveg svo enda er berlega hægt að sjá það á fundargerðum bæjarins að tekist er á um hin ýmsu málefni bæjarins þegar svo ber undir og má til dæmis benda á að Samfylkingin sat hjá vegna fjárhagsáætlunar bæjarins 2014 og einnig þriggja ára fjárhagsáætlun og er hægt að lesa bókanir þar um og ótalmargt fleira.

Það er rétt sem kemur fram í fréttinni að góð og mikilvæg vinna fer fram í nefndum bæjarins en þó er það svo að það eru ekki allar ákvarðanir teknar á nefndarfundum. Því miður hefur borið á því að nefndir hafa verið sniðgengnar um sum málefni og ákvarðanir verið teknar án þess að fyrir liggi samþykki nefnda þar um og afgreiðslan eftir því.

Ég tel heillavænlegra að viðhafa þannig vinnubrögð að ákvarðanir séu byggðar á ígrunduðum faglegum vinnubrögðum og allar upplýsingar liggi fyrir til hagsbóta fyrir bæjarfélagið.

Það er nefnilega svo margt sem gerist á vettvangi bæjarstjórnar og ætti umræðan að snúast um annað og meira en stuttar fundarsetur. Við sem störfum fyrir Samfylkinguna á Seltjarnarnesi höfum ávallt hagsmuni bæjarbúa og starfsmanna að leiðarljósi í öllu okkar starfi og umfram allt að fagleg vinnubrögð séu viðhöfð í hvívetna.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×