Nýr sigurvegari var krýndur í einni vinsælustu raunveruleikaþáttaseríu heims í vikunni. Allir keppendur eiga við offituvandamál að stríða í byrjun seríunnar og er sigurvegarinn sá sem nær að losa sig við hæstu prósentu líkamsþyngdar sinnar. Í þetta sinn stóð 24 ára kona uppi sem sigurvegari. Í úrslitaþættinum var hún rúm 47 kíló.
Þegar í ljós kom að þessi indæla stúlka hrósaði sigri stóðu allir í salnum upp og klöppuðu. Þegar myndavélin skannaði áhorfendur sást aðdáunarglampi í augum margra kvenna og karla. Svo var myndavélinni beint að einkaþjálfurunum sem leiðbeina keppendum. Viðbrögð þeirra voru langt frá því að lýsa aðdáun.
Þarna stóð sigurvegarinn. Í sömu fatastærð og grunnskólabarn. Útúr víraður og kinnfiskasoginn og minnti helst á amfetamínsjúkling. Með upphandleggi á stærð við meðalstóra gulrót. En hún vann. Hún vann fjórðung úr milljón dollara. Tæpar þrjátíu milljónir króna.
Hingað til hefur þessi þáttur verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég hef horft á allar seríurnar sem hafa verið framleiddar vestan hafs síðan árið 2002. Ég elska að sjá fólk finna vonina á ný, sigrast á sjálfu sér og endurheimta líf sitt. Ófá tárin hafa lekið niður mínar kinnar í gegnum árin og tilfinningin sem ég hef alltaf fundið þegar ég horfi á úrslitaþáttinn er gleði.
Í ár var annað uppi á teningnum. Í ár brá mér vægast sagt. Ég sá ekkert gleðilegt við þessa vesalings stúlku sem stóð uppi á sviðinu eins og sýningardýr. Búin að leggja heilsu sína að veði fyrir þrjátíu milljónir króna.
Í fyrsta sinn var ég ekki #TeamBiggestLoser eins og ég myndi kassmerkja það á Twitter.
Ég vona svo innilega að þessi blessaða stúlka átti sig á því að þessi lífsstíll hennar er ekki öfundsverður. Ég vona það heitt að hún eigi góða að í kringum sig sem geta beint henni á rétta, heilbrigðari braut. Ég vona líka að ég eigi aldrei aftur eftir að fyllast vonleysi og depurð þegar ég horfi á minn eftirlætissjónvarpsþátt.
