37 ára gamall troðslukóngur er enn að Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2014 17:15 Vince Carter. Vísir/AP
Vince Carter var á sínum tíma aðal "troðarinn" í NBA-deildinni í körfubolta og hann sýndi í nótt að lengi lifir í gömlum glæðum. Vince Carter, sem er að verða 38 ára gamall í janúar, spilar nú með liði Memphis Grizzlies, og hefur verið að standa sig ágætlega í síðustu leikjum eftir annars rólega byrjun. Carter skoraði 12 stig á móti Utah í nótt en það var karfa hans í fjórða leikhlutanum sem vakti mesta hrifningu manna og enn á ný rataði kappinn inn í tilþrifapakka kvöldsins. Carter fékk boltann í hraðri sókn, keyrði upp að körfunni og tróð af krafti yfir hinn 216 sm Rudy Gobert sem er fimmtán árum yngri en hann. Vince Carter hóf NBA-feril sinn hjá Toronto Raptors árið 1998 og var fastagestur í öllum tilþrifapökkum frá deildinni. Hann fékk gælunefni eins og "Vinsanity" "Air Canada" og "Half-Man, Half-Amazing". Bandarískir fjölmiðlar voru að rifja upp "Vinsanity" gælunafnið eftir troðslu næturinnar en hana má sjá hér í myndbandinu fyrir ofan. Þetta er sautjánda tímabil Vince Carter í NBA-deildinni en hann hefur alls troðið 685 sinnum í leik í NBA-deildinni. Troðslan í nótt var þó bara önnur troðsla hans á þessu tímabili.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira