„Sumarferðir skipuleggja ferðir fyrir fjölskyldur sem vilja gæðaferðir á viðráðanlegu verði,“ segir Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir vörumerkjastjóri Sumarferða. Rík áhersla er lögð á að þarfir fjölskyldufólks hjá Sumarferðum og eru áfangastaðir Sumarferða valdir með vilja og þarfir fjölskyldna að leiðarljósi. Af áfangastöðum Sumarferða má nefna Almería, Alicante ,Tenerife, Kanarí og Mallorca. „Við veljum hótelin einnig af mikilli kostgæfni. Það þarf að hafa í huga að umhverfið sé fallegt, herbergin rúmgóð og að börnin hafi nóg við að vera í hótelgarðinum, svo eitthvað sè nefnt.“

Hótel sem skilja eftir góðar minningar
Á Mallorca geta viðskiptavinir Sumarferða valið á milli fjölda vandaðra gististaða á þremur svæðum á norðausturhluta eyjarinnar; Alcudia, Playa de Muro og Can Picafort. „Þessi hluti eyjarinnar er algjör náttúruperla enda er svæðið gróið og fallegt. Norður Mallorca varð líka sérstaklega fyrir valinu vegna þess hve strendurnar eru hreinar og fallegar,“ segir Kristbjörg og bendir á að ströndin henti sérlega vel fyrir börn enda sé hún aðgrunn og sjórinn hlýr. Í miðbæ Alcudia er boðið uppá fjölskylduhótel þar sem stutt er á veitingarstaði og verslanir en Playa de Muro og Can Picafort bjóða hótelinþar upp á sérhannaða og spennandi hótelgarða og ósvikna náttúru paradís.
Allir þurfa eitthvað
„Á Mallorca viljum við geta boðið fjölskyldum uppá afslappandi, þægilegar og eftirminnilegar upplifanir. Boðið er uppá dagsferðir til nálægra þorpa á borð við Polleca og heimsóknir til höfuðborgarinnar Palma, sem þykir ein hreinasta og fallegasta borgin við Miðjarðarhafið og þar er einnig gott að versla. Þá mæli ég sérstaklega með að aka um eyjuna og kanna fagurt umhverfið,“ segir Kristbjörg.
Fjölskyldustefna Sumarferða nær líka til flugferðarinnar en boðið er upp á mjög barnvænt, beint flug á góðum tíma, með léttri máltíð og afþreyingu um borð.
„Mallorca er málið fyrir Íslendinga í sumar. Þar færðu allt í einum pakka, frábært veður, fallegt og öruggt umhverfi sem og einstaka gestrisni eyjaskeggja,“ segir Kristbjörg og býður öllum að leita nánari upplýsinga á sumarferdir.is.

- Frábær hótel
- Náttúrufegurð
- Menningu og sögu
- Æðislega strönd
- Skemmtigarða
- Öruggt umhverfi
- Barnaklúbba

Alcudia
Sol de Alcudia er gott þriggja stjörnu hótel staðsett um 500 metra frá ströndinni í Alcudia. Verslanir og veitingarstaðir eru næsta nágrenni. Í sundlaugargarðinum er góð sólbaðsaðstaða með bekkjum, sólhlífum, sundlaugabar, veitingastað, sundlaug og barnalaug.

Playa de Muro
Íbúðahótelið VIVA Blue er á frábærum stað, aðeins 200 metra frá Muro ströndinni í Playa de Muro. Hvað afþreyingu varðar er af nógu að taka því hægt er að spila tennis, fótbolta, körfubolta og bandí/hokkí.