Óvæntur sigur hjá Lakers | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. desember 2014 10:45 Fjarvera Kobe Bryant kom ekki að sök í nótt. vísir/afp
Ellefu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Los Angeles Lakers vann óvæntan tíu stiga sigur, 105-115, á Golden State Warriors á heimavelli. Kobe Bryant, þriðji stigahæsti leikmaður deildarinnar í vetur, lék ekki með Lakers í nótt en það kom ekki að sök. Carlos Boozer kom sterkur inn af bekknum og var stigahæstur í liði Lakers með 18 stig, auk þess sem hann tók níu fráköst. Ronnie Price skilaði 17 stigum og átta stoðsendingum. Stephen Curry skoraði 22 stig fyrir Golden State, en tapið í nótt var aðeins það fjórða hjá liðinu í vetur. Atlanta Hawks hélt sigurgöngu sinni áfram með því að leggja Los Angeles Clippers að velli, 107-104. Þetta var 14. sigur Atlanta í síðustu 15 leikjum. DeMarre Carroll setti persónulegt met með því að skora 25 stig fyrir Atlanta. Hann reif einnig niður 10 fráköst. Paul Millsap átti einnig góðan leik með 17 stig, níu fráköst og sjö stoðsendingar. Blake Griffin var atkvæðamestur í liði Clippers með 21 stig, átta fráköst og 11 stoðsendingar. Þá skoraði DeAndre Jordan 15 stig, tók 22 fráköst og varði fjögur skot. LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers áttu ekki í miklum vandræðum með Minnesota Timberwolves á heimavelli. Lokatölur 125-104, Cleveland í vil sem hefur unnið tólf af síðustu 15 leikjum sínum. Kyrie Irving var stigahæstur í liði Cleveland með 29 stig, James skoraði 24 stig og þá skoraði Kevin Love 20 stig og tók 10 fráköst gegn sínum gömlu félögum. Andrew Wiggins var stigahæstur í liði Úlfanna með 27 stig gegn liðinu sem valdi hann upphaflega í nýliðavalinu í sumar.Úrslitin í nótt: Minnesota Timberwolves 104-125 Cleveland Cavaliers New Orleans Pelicans 84-96 Indiana Pacers Boston Celtics 95-100 Orlando Magic Chicago Bulls 99-91 Washington Wizards Los Angeles Clippers 104-107 Atlanta Hawks Denver Nuggets 96-102 Brooklyn Nets Philadelphia 76ers 91-87 Miami Heat Charlotte Hornets 108-101 Milwaukee Bucks Portland Trail Blazers 115-111 Oklahoma City Thunder Dallas Mavericks 115-124 Phoenix Suns Golden State Warriors 105-115 Los Angeles LakersRosaleg troðsla hjá DeAndre Jordan Andrew Wiggins átti flottan leik í nótt Kyrie Irving sýndi ýmsar boltakúnstir í nótt
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira