Áhugamál sem fór úr böndunum 5. desember 2014 17:00 Ragnar verður í Eymundsson í Smáralind til 19 í dag og í Eymundsson í Kringlunni milli 13 og 17 á morgun. MYND/VILHELM
Ragnar Freyr Ingvarsson, oft nefndur læknirinn í eldhúsinu eftir samnefndu bloggi sem hann heldur úti, mun gefa gestum og gangandi sem líta við í Eymundsson í Smáralind og Kringlunni, risotto, um helgina. Hann mun jafnframt veita opna ráðgjöf um jólaeldamennskuna og fleira. Ragnar Freyr gaf út bókina Veislan endalausa fyrir skemmstu en hún fylgir eftir bókinni Tími til að njóta sem kom út í fyrra. Í báðum bókunum er meðal annars að finna uppskriftir af risotto. Bókaskrifunum sinnir Ragnar Freyr samhliða fullri vinnu, en hann er sérfræðingur í gigtarlækningum á háskólasjúkrahúsinu í Lundi. „Þetta er áhugamál sem hefur farið algerlega úr böndunum,“ segir hann léttur í bragði. Í fyrri bókinni lagði Ragnar áherslu á sígilda evrópska matargerð. „Í nýju bókinni er líka að finna mikið af klassískum réttum en þó meira af því sem ég hef verið að prófa mig áfram með í gegnum tíðina og uppskriftum sem ég hef viðað að mér á ferðalögum þar sem ég hef verið að smakka mig í gegnum heiminn. Ef ég væri tónlistarmaður mætti segja að nú væri meira af eigin efni.“ Ragnar segist hafa mjög gaman af því að lesa um matarsögu, hvaðan tilteknir réttir koma og hvaða ferð þeir hafa farið í gegnum heiminn. Sá fróðleikur fær að fylgja með. Hann segir bækurnar fyrir nautarseggi og alla þá sem vilja elda góðan mat.Veislan endalausa fylgir eftir bókinni Tími til að njóta sem kom út í fyrra.En hvað með framhaldið? Ætlar þú að gefa út aðra bók að ári? „Nei nú tek ég smá pásu. Ég skulda handleiðara mínum doktorsritgerð og þarf að fara að koma henni frá. Ég hef verið að rannsaka faraldursfræði Rauðra úlfa í Suður-Svíþjóð. Ritgerðin fjallar um tíðni sjúkdómsins og meðferð.“ En spáir þú í tengsl mataræðis og sjúkdóma? „Ég geri það sífellt meira og reyni í auknum mæli að miðla því til sjúklinga að hugsa um mataræði og hreyfingu enda skiptir það gríðarlega miklu máli fyrir heilsuna. Ég hef þó hingað til haldið þessu aðskildu. Ég er einfaldlega læknir sem hef gaman af því að elda. Fræðin varðandi það hvernig mataræði getur haft áhrif á tiltekna sjúkdómaflokka eru líka skammt á veg komin. Það á ýmislegt eftir að rannsaka í þeim efnum." Ragnar Freyr er staddur hér á landi um helgina til að kynna bókina. Hann tók þátt í bókamessunni í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir tveimur vikum. „Þar gaf ég yfir 1000 chilli con carne skammta. Það mæltist svo vel fyrir að Eymundsson bað mig um að koma til sín um helgina.“ Ragnar verður í Eymundsson í Smáralind til 19 í dag og Eymundsson í Kringlunni milli 13 og 17 á morgun.
Mest lesið Svona færðu fullnægingu án handa Lífið Þjóðbúningurinn aðal skvísuflíkin í dag Lífið Aðalfyrirsæta í herferð 66°Norður 99 ára gömul Tíska og hönnun Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Tónlist Huggulegustu hommar landsins kaupa heillandi hæð Lífið Barðist við tárin yfir fimmtán mínútna lófataki Bíó og sjónvarp Cardi B sýknuð af kröfu um líkamsárás á öryggisvörð Lífið Stjörnulífið: „Hógværasti maður á jörðinni“ Lífið Hljóp annað maraþon á tánum og minntist Bríetar Irmu Lífið „Og Rakel er á lausu!“ Lífið Fleiri fréttir Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira
Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Tónlist
Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Tónlist