Lífið

Jólastjarnan 2014: Kamilla Rós syngur Someday at Christmas

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kamilla Rós Bjarnadóttir er ein af tíu keppendum sem keppast um að verða Jólastjarnan 2014. Hér fyrir neðan má sjá atriðið sem hún sýndi fyrir dómnefnd í keppninni en hún flutti lagið Someday at Christmas.

Kamilla Rós verður fimmtán ára í desember og hefur greinilega unun af því að syngja og koma fram.

Söngkeppnin Jólastjarnan hefur verið haldin síðustu ár og í ár sóttu um þrjú hundruð  börn, yngri en sextán ára, um að komast í tíu manna úrtak fyrir framan dómnefnd. Í dómnefnd í ár eru Björgvin Halldórsson, Gissur Páll, Gunnar Helgason og Jóhanna Guðrún.

Sigurvegari keppninnar verður tilkynntur í næstu viku í Íslandi í dag en hann kemur fram á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins eins og síðustu ár.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.