Hitti McConaughey í London: „Dauðlangaði til að segja: alright, alright, alright“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 3. nóvember 2014 12:30 Sigríður segir Matthew hafa ljómað þegar Ísland bar á góma. Vísir/getty & úr einkasafni „
Þegar ég fór að heiman á fimmtudagsmorgun var tæplega tuttugu stiga hiti í London og haustlitirnir ótrúlega fallegir í sólinni. Ég þurfti að klípa mig í handlegginn, trúði varla eigin lukku að fá tækifæri til að taka viðtöl við stjörnur nýjustu myndar Christopher Nolan, Interstellar,” segir kvikmyndafræðingurinn Sigríður Pétursdóttir. Sigríður hefur búið í London í tvö ár og fékk það verðuga verkefni að taka viðtal við leikara myndarinnar Interstellar, þau Matthew McConaughey, Anne Hathaway, Jessicu Chastain og Mackenzie Foy í síðustu viku. Viðtölin verða sýnd í Djöflaeyjunni á RÚV á morgun en SAM-bíóin útveguðu Sigríði viðtölin. Myndin, sem tekin var upp að hluta til á Íslandi í fyrra, verður frumsýnd þann 7. nóvember. Daginn áður en Sigríður fékk að taka viðtöl við stjörnurnar var haldinn blaðamannafundur með aðstandendum myndarinnar. „Blaðamannafundurinn daginn áður sannfærði mig um að þau yrðu öll góðir viðmælendur en að ná viðtali af viti við hvern og einn á aðeins fimm mínútum er ögrandi verkefni,” segir Sigríður og bætir við að þessar aðstæður minni um margt á atriði í kvikmyndinni Notting Hill þar sem leikarinn Hugh Grant þykist vera blaðamaður.Blaðamannafundur með aðstandendum myndarinnar.„Þeir sem hafa séð myndina Notting Hill þar sem Will þykist vera tíðindamaður blaðsins Horse & Hound, fer á milli herbergja og ræðir við hverja stjörnuna á fætur annarri, geta gert sér í hugarlund hvernig þetta er því nákvæmlega þannig fara viðtölin fram. Maður mætir snemma á hótelið og skrifar undir allskonar pappíra, lofar að spyrja ekki um annað en myndina, biðja stjörnurnar ekki um myndir með þeim og birta efnið aðeins á þeim miðli sem þeir hafa samþykkt fyrir,” segir Sigríður og bætir við að talsverð bið hafi verið eftir viðtölunum. „Síðan hefst löng bið en skemmtileg því það myndast oft frábær stemming þar sem sjónvarpsfólk víðs vegar að úr heiminum situr saman, fær fínar veitingar og spjallar um kvikmyndir og mismunandi aðstöðu fjölmiðla í heimalöndunum. Ég eignaðist vinkonu frá Írlandi og rússnesk stúlka sagði okkur sláandi sögur af spillingu í rússneskri kvikmyndagerð. Ég gat hins vegar sagt þeim frá því að íslensk kvikmynd hefði í fyrsta sinn fengið norrænu kvikmyndaverðlaunin og sumir mundu eftir frábærum dómi Guardian um Hross í oss.”Sjónvarpsmaður frá Ísrael prófar Oculus Rift-hjálminn.Loks kom að því að Sigríður tók viðtöl við leikarana. „Svo erum við leidd milli herbergja, eitt í einu, til að taka viðtölin. Maður hefur varla tíma til að heilsa stjörnunum áður en allt er keyrt í gang. Misjafnt er hvernig þau taka á móti manni og það er óskrifuð regla að heilsa ekki með handabandi nema þau rétti fram höndina að fyrra bragði. Matthew McConaughey sat og smellti fingrum, mig dauðlangaði til að segja: “alright, alright, alright” en lét það nú ekki eftir mér. Jessica Chastain var mjög hrifin af nafninu mínu og gerði fjölda tilrauna til að reyna að bera það rétt fram en Anne Hathaway hældi hins vegar gíraffabuxunum mínum. Mackenzie Foy er stórhuga stelpa sem ætlar að verða leikstjóri í framtíðinni, handtak hennar var þétt og augnaráðið einlægt. Þau voru öll draumaviðmælendur hvert á sinn hátt,” segir Sigríður. Interstellar var tekin af hluta til á Íslandi, nánar tiltekið á Svínafellsjökli, fyrir rúmu ári síðan með aðstoð íslenska framleiðslufyrirtækisins Sagafilm. Leikararnir báru Íslandi góða söguna. „Matthew og Anne ljómuðu eins og sólin þegar þau töluðu um Ísland og tökurnar þar. Fannst landið einstakt og hældu tökuliði Sagafilm fyrir fagmennsku. Ég var heppin að vera frá Íslandi því Matthew var eitthvað illa fyrirkallaður og kollegar mínir töluðu um að hann hefði verið fjarrænn og aldrei farið á flug. Ég hafði hins vegar aðra sögu að segja því hann fór á flug um leið og ég minntist á Ísland,“ segir Sigríður. Eftir viðtölin voru blaðamenn keyrðir í IMAX-kvikmyndahúsið þar sem þeir fengu að horfa á þrjár mínútur úr Interstellar með svokallaðan Oculus Rift-hjálm á höfðinu. „Þá er maður staddur í sýndarveruleika, ég ferðaðist um í geimskipinu og það var fáránlega raunverulegt. Svona eigum við sennilega eftir að horfa á sumar kvikmyndir í framtíðinni. Upplifa þær sem ein af persónum myndarinnar.“ Sigríður hóf störf hjá RÚV fyrir rúmum þrjátíu árum. Síðustu tvö árin hefur hún til að mynda tekið viðtöl á London Film Festival og farið í heimsókn á tökustað Downton Abbey fyrir Djöflaeyjuna. Hún er afar dularfull þegar hún er spurð út í hvað er á döfinni hjá henni. „Það getur verið að ég taki viðtal við ennþá stærri kvikmyndastjörnu í desember en það er allt á huldu ennþá.“
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Anne Hathaway ofkældist á Íslandi Leikkonan lenti í hrakningum við tökur á myndinni Interstellar hér á landi. 22. október 2014 18:39 Matthew McConaughey í óbeislaðri, íslenskri náttúru Ný plaköt fyrir kvikmyndina Insterstellar afhjúpuð. 26. september 2014 15:30 Rosalega mikið af Íslandi í Interstellar Árni Björn Helgason hjá Saga Film er ánægður með hvernig Hollywood-myndin Interstellar kemur út á hvíta tjaldinu. Stjörnurnar myndarinnar voru allar mjög jarðbundnar og langt í frá með einhverja stæla. 23. október 2014 08:30 Ný stikla úr Interstellar Myndin var að hluta til tekin upp hér á landi 31. júlí 2014 12:00 Glittir í Ísland í nýrri stiklu Styttist í frumsýningu stórmyndarinnar Interstellar. 26. ágúst 2014 20:58 Ris, fall og endurreisn Matthew McConaughey Leikarinn Matthew McConaughey hefur lifað tímana tvenna. 22. janúar 2014 11:00 Misjafnir dómar um Interstellar Nær ekki flugi samkvæmt dómi Hollywood Reporter en Variety segir hana spennandi. 27. október 2014 19:00 Ný stikla úr Interstellar Hluti af myndinni var tekinn upp hér á landi. 16. maí 2014 22:00 Svínafellsjökull áberandi í nýrri stiklu Kvikmyndin Interstellar var tekin upp að hluta hér á landi og er frumsýnd 7. nóvember. 2. október 2014 17:00 Fyrsta stiklan úr Interstellar Hluti af myndinni var tekinn upp á Íslandi í haust. 16. desember 2013 14:00 Mest lesið Dóra Júlía og Bára gengu í það heilaga Lífið Viðtöl ársins 2024: Óvænt andlát, ófrjósemi og flutningar til Bandaríkjanna Lífið Andrew Garfield á Íslandi Lífið Blökastið hringir inn nýja árið með Nýársbingó Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Margmenni í Bláfjöllum Lífið Brúðkaup ársins 2024 Lífið Katrín Tanja trúlofuð Lífið Dagbók móður: „Munum við fara fjárhagslega á hausinn?“ Áskorun Steven og Guðný Ósk eru nýtt par Lífið Fleiri fréttir Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Sjá meira
Anne Hathaway ofkældist á Íslandi Leikkonan lenti í hrakningum við tökur á myndinni Interstellar hér á landi. 22. október 2014 18:39
Matthew McConaughey í óbeislaðri, íslenskri náttúru Ný plaköt fyrir kvikmyndina Insterstellar afhjúpuð. 26. september 2014 15:30
Rosalega mikið af Íslandi í Interstellar Árni Björn Helgason hjá Saga Film er ánægður með hvernig Hollywood-myndin Interstellar kemur út á hvíta tjaldinu. Stjörnurnar myndarinnar voru allar mjög jarðbundnar og langt í frá með einhverja stæla. 23. október 2014 08:30
Glittir í Ísland í nýrri stiklu Styttist í frumsýningu stórmyndarinnar Interstellar. 26. ágúst 2014 20:58
Ris, fall og endurreisn Matthew McConaughey Leikarinn Matthew McConaughey hefur lifað tímana tvenna. 22. janúar 2014 11:00
Misjafnir dómar um Interstellar Nær ekki flugi samkvæmt dómi Hollywood Reporter en Variety segir hana spennandi. 27. október 2014 19:00
Svínafellsjökull áberandi í nýrri stiklu Kvikmyndin Interstellar var tekin upp að hluta hér á landi og er frumsýnd 7. nóvember. 2. október 2014 17:00
Fyrsta stiklan úr Interstellar Hluti af myndinni var tekinn upp á Íslandi í haust. 16. desember 2013 14:00