Stórleikur James Harden í sigri Houston | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. nóvember 2014 07:57 James Harden í leiknum í nótt. Vísir/AP
Houston gerði góða ferð til Philadelphia í NBA-deildinni í nótt og vann heimamenn, 104-93. James Harden átti stórleik og skoraði 35 stig auk þess að taka níu fráköst. Dwight Howard bætti við ellefu stigum og tók þar að auki fjórtán fráköst fyrir Houston sem hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa á tímabilinu. Philadelphia hefur hins vegar tapað öllum sínum fjórum leikjum. Trevor Ariza setti niður sex þrista í leiknum en alls nýtti Houston sextán af 34 þriggja stiga skotum sínum.Brooklyn vann Oklahoma City, 116-85, þar sem Brook Lopez spilaði í fyrsta sinn síðan í desember í fyrra. Hann skoraði átján stig, rétt eins og Alan Anderson. Kevin Durant og Russell Westbrook eru báðir frá vegna meiðsla hjá Oklahoma City en þar að auki missti liðið Andre Roberson af velli með tognun snemma í leiknum. Reggie Jackson spilaði þó sinn fyrsta leik á tímabilinu og skoraði 23 stig.Memphis vann New Orleans, 93-91, og þar með sinn fjórða leik í röð en liðið hefur aldrei byrjað betur en nú. Marc Gasol var með sextán stig og Zach Randolph fimmtán.LA Clippers vann Utah, 107-101. Blake Griffin skoraði 31 stig og Jamal Crawford nítján en sá síðarnefndi komst þar með yfir fimmtán þúsund stig á ferlinum sínum.Úrslit næturinnar: Philadelphia - Houston 93-104 Brooklyn - Oklahoma City 116-85 Memphis - New Orleans 93-81 Dallas - Boston 118-113 Denver - Sacramento 105-110 LA Clippers - Utah 107-101
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira