Stjörnukonur geta orðið Íslandsmeistarar í kvöld T´moas Þór Þórðarson skrifar 22. september 2014 08:45 Harpa Þorsteinsdóttir fékk gullskóinn í fyrra og fær hann örugglega aftur í ár. vísir/daníel
Stjarnan getur orðið Íslandsmeistari kvenna í fótbolta í kvöld þegar liðið tekur á móti Aftureldingu á Samsung-vellinum í Garðabæ klukkan 17.15. Þegar tvær umferðir eru eftir í Pepsi-deild kvenna er Stjarnan á toppnum með 43 stig, sex stigum meira en Breiðablik sem situr í öðru sæti. Stjarnan þarf því aðeins eitt stig í kvöld gegn Mosfellingum sem eru í níunda og næstsíðasta sæti deildarinnar. Stjarnan vann Borgunarbikarinn í ágúst í annað skiptið í sögu félagsins, en sá fyrsti kom fyrsti kom fyrir tveimur árum. Garðabæjarstúlkur geta því unnið fyrstu tvennu félagsins í ár lyfti þær Íslandsmeistaratitlinum á teppinu í kvöld. Stjarnan varð fyrst Íslandsmeistari kvenna 2011 og svo aftur í fyrra þannig vinni liðið í kvöld verður þetta þriðji Íslandsmeistaratitillinn á síðustu fjórum tímabilum og þá væri liðið búið að innbyrða fimm stóra titla á þeim tíma. Ekki amalegur árangur. Gengi Stjörnunnar í Pepsi-deildinni undanfarnar tvær leiktíðir er hreint lygilegt, en hún vann mótið í fyrra án þess að tapa svo mikið sem einu stigi. Stjarnan vann 18 leiki af 18, skoraði 69 mörk og fékk ekki á sig nema sex mörk. Í Pepsi-deildinni í sumar hefur Stjarnan unnið 14 leiki af 16, gert eitt jafntefli og tapað aðeins einum leik. Markatalan er 53-9. Stjarnan hefur því í heildina á síðustu tveimur leiktíðum unnið 32 leiki af 34, gert eitt jafntefli og tapað einum leik. Liðið hefur innbyrt 97 stig af síðustu 102 og markatalan 122-15. Leikurinn í kvöld verður í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Fótbolti Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Enski boltinn Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Almar og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Enski boltinn Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Handbolti Sló í fugl en það dugði ekki til Golf Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Ótrúleg staða hjá Bayern: Allir markverðirnir meiddir Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Sjá meira