Bærinn málaður bleikur 24. september 2014 16:30 Bragi Reynisson, framkvæmdastjóri Luxor. MYND/ERNIR
Fyrirtækið Luxor mun leggja Krabbameinsfélaginu lið í október og lýsa bæinn bleikan í samstarfi við ýmis fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Átakið tengist sölu Bleiku slaufunnar í októbermánuði en hún er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameinum í konum. Luxor mun bjóða upp á þrjá ólíka pakka þar sem öll fyrirtæki ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi að sögn Braga Reynissonar, framkvæmdastjóra Luxor, og mun 15% af andvirði viðskiptanna renna óskertur til Krabbameinsfélagsins. „Við hvetjum sem flesti fyrirtæki til að taka þátt í þessu frábæra málefni en sífellt fleiri fyrirtæki hafa tekið þátt undanfarin ár. Hingað til höfum við ekki getað annað eftirspurn en í ár erum við búinn að birgja okkur upp af ljósum og öllum tilheyrandi búnaði. Nú verður í fyrsta skiptið hægt að taka þátt í þessu verkefni fyrir skynsamlegar fjárhæðir.“Bleiku ljósin munu svo lýsa upp borgina út allan októbermánuð.MYND/ÚR EINKASAFNIUndanfarin ár hefur þeim fyrirtækjum fjölgað sem lýsa upp framhlið byggingarinnar í októbermánuði til að sýna átakinu stuðning. „Nú bjóðum við upp á þrjá pakka og leggjum mikla áherslu á að hafa allt ferlið einfalt og þægilegt fyrir viðskiptavini. Í fyrsta lagi bjóðum við grunnpakka með ljósum sem inniheldur þrjú ljós, uppsetningu, frágang á snúrum og niðurtekt í lok tímabils. Af þeim pakka renna að minnsta kosti 30.000 kr. til Krabbameinsfélagsins. Einnig bjóðum við upp á grunnpakka án ljósa sem inniheldur litafilmur fyrir þrjú ljós, uppsetningu og niðurtekt í lok tímabils. Þar renna að minnsta kosti 6.750 kr. til félagsins. Að lokum má nefna pakka sem nefnist Bland í poka en þá eru ljós sem eru á staðnum lituð bleik og aukaljósum bætt við eftir þörfum. Sú upphæð sem rennur til Krabbameinsfélagsins ákvarðast af heildarverði þess pakka.“ Tæknimenn Luxor mæta á staðinn vopnaðir ljósum, filmu og öðrum nauðsynlegum búnaði. Þeir sjá um að meta staðsetningar og ljósaþörf og lita ljós sem eru til staðar sé þess óskað. Tekið verður við pöntunum fram til 1. október og segir Bragi að starfsmenn séu snöggir að setja allt upp. „Bleiku ljósin munu svo lýsa upp borgina út allan októbermánuð þar til starfsmenn okkar koma og ganga frá í lok októbermánaðar.“ Allar nánari upplýsingar má finna á luxor.is.
Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Jón Ólafur nýr formaður SA Viðskipti innlent Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent