Dramatískur sigur Liverpool í endurkomunni í Meistaradeildina Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. september 2014 11:07 Steven Gerrard skoraði sigurmarkið. vísir/getty
Liverpool vann nauman 2-1 sigur á búlgarska liðinu Ludogorets í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Liverpool var betra liðið í leiknum og fékk nokkur ágæt færi fram af leik, en inn vildi boltinn ekki í í mark Ludogorets sem er að spila í fyrsta skipti í Meistaradeildinni. Gestirnir gerðust ágengari í seinni hálfleik og fengu sjálfir nokkur góð færi, það besta þegar sóknarmaður Búlgaranna skaut í stöngina, einn á móti markverði. Þar slapp Liverpool með skrekkinn. Þegar allt stefndi í markalaust jafntefli í endurkomu Liverpool í Meistaradeildina komust heimamenn 1-0 yfir með marki Mario Balotelli á 82. mínútu. Balotelli fékk boltann inn á teiginn og kom honum í netið eftir að hafa betur í baráttunni við varnarmann gestanna. Dramatíkinni var þó langt frá því lokið því Ludogorets jafnaði metin á 90. mínútu, en það gerði DaniAbalo. Í næstu sókn Liverpool reyndi varnarmaður gestanna slæma sendingu aftur á markvörð sinn sem varð til þess að hann missti boltann frá sér. Fabio Borini vann boltann og markvörðurinn braut á honum; vítaspyrna. Úr henni skoraði StevenGerrard af öryggi á þriðju mínútu í uppbótartíma og sigur Liverpool í höfn.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ætlar að hella í sig þegar Stephen Curry hættir Körfubolti Karius mættur í þýsku B-deildina Fótbolti Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd Fótbolti Umdeildur arnatemjari rekinn fyrir að birta typpamyndir Fótbolti „Fannst við eiga vinna leikinn” Körfubolti Danir skoruðu 47 mörk í fyrsta leik sínum á HM Handbolti Þrettánda jafnteflið hjá Juventus Fótbolti Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Enski boltinn Njarðvík og Stjarnan með góða útisigra Körfubolti Freyr gaf KSÍ tveggja sólarhringa frest: „Ég stóð bara við mín orð“ Fótbolti Fleiri fréttir Karius mættur í þýsku B-deildina Þrettánda jafnteflið hjá Juventus Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd Malen mættur til Villa Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Freyr gaf KSÍ tveggja sólarhringa frest: „Ég stóð bara við mín orð“ Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Sven-Göran skildi eftir sig skuldir upp á einn og hálfan milljarð Engin stig tekin af ensku liðunum Umdeildur arnatemjari rekinn fyrir að birta typpamyndir Tímabilinu líklega lokið hjá Jesus Atli á leið til Víkings Guardiola skilinn eftir þrjátíu ára samband Freyr stígur inn í fótboltasjúkt samfélag: „Hefur áhrif á allan bæinn hvernig gengur“ Stoltur og glaður Freyr fékk óumbeðna mynd frá Birki Fyrirliði Man United sendi Jóa Berg og fjölskyldu fallega gjöf Á morgun opinberar enska úrvalsdeildin hvaða liðum verður refsað Orri Steinn kom inn í lokin í sigri á Gula kafbátnum Albert spilaði fyrri hálfleik í tapi Fiorentina Valdi norsku B-deildina fram yfir Víking Láki sækir leikmann sem hann þekkir vel Conte vill fá Garnacho í staðinn fyrir Kvaratskhelia Littler hunsaði Beckham óvart „Þjálfarinn sem að lokum tekur ákvörðunina um það hver okkar spilar“ Sjá meira