Engin áform um frestun | KR-völlurinn á floti Anton Ingi Leifsson skrifar 31. ágúst 2014 12:30 KR-völlurinn í slæmu ástandi. Vísir/KR
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, segir í samtali við Vísi að engin félög hafi haft samband við hann og beðið um frestun á leikjunum sem eiga að fara fram í dag. Heil umferð í Pepsi-deild karla er fyrirhuguð. Veðrið er afar slæmt á höfuðborgarsvæðinu en mikil rigning er þessa stundina og hefur verið í alla nótt. Auk þess er strekkingsvindur víða og veður til knattspyrnuiðkunar ekki gott. Birkir sagði að eina sem kæmi til greina væri að fresta leikjunum, en hann vonaðist til að veðrið myndi slá niður. „Staðan eins og hún er núna er ekki eins og best verður á kosið, en við lentum í svipuðu fyrir Evrópuleik gegn Glentoran 2010 þá fengum við vaska menn í vinnu sem komu mestum hluta vatnsins niður," sagði Sveinbjörn Þorsteinsson, vallarstjóri KR-vallar, í samtali við Fótbolta.net. Stórleikur KR og Stjörnunnar á að fara fram á KR-vellinum í dag, en liðin eru í öðru og þriðja sæti Pepsi-deildarinnar. Sveinbjörn treystir á Ingó Veðurguð. „Við stefnum að sjálfsögðu að spila leikinn, en við tökum stöðuna seinna í dag. Við vonum að Ingó Selfyssingur og hans vinir verði með okkur í dag."Leikur KR og Stjörnunnar, fari hann á annað borð fram, verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 17 og beinni textalýsingu á Vísi líkt og allir sex leikir dagsins. Pepsi-mörkin fara svo yfir alla leikina í beinni klukkan 22 á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild karla Veður Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira