Stærsti skjálftinn til þessa 18. ágúst 2014 06:57 Frá eldgosinu í Grímsvötnum árið 2011 sem er á sama kvikusvæði og Bárðarbunga. Vísir/EGILL
Jarðskjálfti upp á að minnsta kosti 3,8 stig varð í grennd við Kistufell í norð-vestanverðum Vatnajökli í nótt og er þetta sterkasti skjálftinn sem mælst hefur í hrinunni, sem hófst um helgina. Hann fannst meðal annars á Akureyri. Ekki sjást þó merki um að kvika sé að leiðinni upp á yfirborðið. Frá miðnætti til klukkan sex í morgun hafa á þriðja hundrað skjálftar mælst við Bárðarbungu og Kistufell, þannig að hrinan er síst að hjaðna. Jarðvísindamenn flugu undir kvöld í gær yfir svæðið í þyrlu Gæslunnar, til að meta aðstæður. Síðustu sjö ár hefur virkni í Bárðarbungu aukist jafnt og þétt. Í kjölfar gossins í Grímsvötnum árið 2011 datt virknin tímabundið niður, en fór fljótlega að aukast aftur. Skjálftahrina varð á svæðinu í maí í vor, en hún var mun minni en hrinan núna er þegar orðin. Óvissuástand er enn í gildi og útiloka Almannavarnir ekki að atburðarrásin geti leitt til eldgoss undir jöklinum, með tilheyrandi flóðum. Þessvegna eru nokkrir hálendisvegir enn lokaðir.
Bárðarbunga Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fleiri fréttir Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Sjá meira