Selfosskonur sóttu þrjú stig í Árbæinn - Valsliðið niður í 7. sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2014 18:45 Vísir/Valli
Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í fótbolta í kvöld og um leið og Stjörnukonur náðu fimm stiga forskoti á toppnum þá jafnaðist baráttan um annað sætið því fimm lið eru nú með 12 og 13 stig í 2. til 6. sæti deildarinnar. Selfoss vann 2-0 sigur á Fylki í Árbænum en Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörður Fylkis, var aðeins búin að fá á sig þrjú mörk í fyrstu sex deildarleikjum tímabilsins. Erna Guðjónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir skoruðu mörk Selfossliðsins í leiknum en þetta var fjórði sigur liðsins í síðustu fimm leikjum. Blikakonur unnu 4-0 heimasigur á Aftureldingu sem kom liðinu upp í 2. sæti deildarinnar. Breiðablik, Þór/KA og Fylkir eru öll með 13 stig og stigi á eftir eru síðan lið ÍBV og Selfoss. Valur náði aðeins markalausu jafntefli á móti FH og missti því bæði ÍBV og selfoss upp fyrir sig í töflunni. Valsliðið hefur aðeins náð að vinna 3 af 7 leikjum sínum og er í 7. sæti deildarinnar.Öll úrslit og markaskorarar í Pepsi-deild kvenna í kvöld:ÍA - ÍBV 0-3 0-1 Shaneka Gordon (23.), 0-2 Gordon (34.), 0-3 Gordon (47.)Stjarnan - Þór/KA 2-1 1-0 Harpa Þorsteinsdóttir (6.), 2-0 Elva Friðjónsdóttir (84.), 2-1 Katla Ósk Rakelardóttir (90.+3)FH - Valur 0-0Fylkir - Selfoss 0-2 0-1 Erna Guðjónsdóttir (5.), 0-2 Dagný Brynjarsdóttir (48.)Breiðablik - Afturelding 4-0 1-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (8.), 2-0 Guðrún Arnardóttir (47.), 3-0 Telma Hjaltalín Þrastardóttir (67.), 4-0 Rakel Hönnudóttir (76.) Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá heimasíðu KSÍ og úrslitasíðunni úrslit.net.Vísir/ValliVísir/ValliVísir/ValliVísir/Valli
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira