Skoðun

Þjónustubærinn Garðabær

Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir skrifar
Ég er í 2. sæti fyrir Framsókn í Garðabæ, býð fram krafta mína fyrir bæjarfélagið mitt.  Mín hugðarefni eru einkum þjónusta við fólkið, sérstaklega við börn og þá sem eldri eru.

Garðabær er sannkallaður þjónustubær, en betur má ef duga skal.  Þó nokkur tekjuafgangur er hjá sveitafélaginu og ætti að nýta hann til enn betri þjónustu við bæjarbúa.

Auka þarf frístundamöguleika fyrir eldra fólk og þá í samvinnu við það. Mikið er um fallega göngustíga og lítil og smekkleg útivistarsvæði. Bæta mætti við bekkjum á fjölda staða og er ég viss um að útivist myndi aukast meðal eldri borgara og jafnvel smábarnafjölskyldna ef hægt væri að setjast, hvíla lúin bein og njóta.  Ekki væri verra að koma upp almenningsalerni sérstaklega með eldra fólk í huga.  Einnig eru hundaeigendur mun duglegri við að tína upp eftir hunda sína ef fleiri ruslafötur eru sýnilegar.  Æskilegt er að einstaka grænt svæði væri lokað fjórfættlingum m.a. vegna fuglalífs og lögð áhersla á sérstök hundasvæði í staðin.

Til að bæir blómstri þarf að huga vel að samgönguleiðum til og frá bænum sem þurfa að vera greiðfærar, almenningssamgöngur verða að virka vel á milli bæjarhluta með frístundir og skóla í huga. Í því tilliti ber að hafa þarfir notenda að leiðarljósi þannig að samgöngur séu fyrir hendi á þeim tímum sem þörf er á.   Fyrir marga, sérstaklega börn og eldri skýrist hluti lífsgæða af almenningssamgöngum sem virka og treysta má á.

Leikskólarnir okkar eru góðir og fer þar fram fjölbreytt starfsemi og er þróunarverkefnið  Námsbók barnsins jákvætt dæmi um það og getur verið mikill stuðningur í þroskaferlinu. Mikilvægt er að sinna þörf og eftirspurn með því að bæta við plássum í eldri hluta bæjarins þar sem foreldrar vilja oftast að börnin séu ekki of langt frá heimilinu.

Heilbrigðisþjónusta bæjarins er góð en margir hafa áhyggjur af vöntun á sérfræðingum og úrræðum hjá félagsþjónustunni.

Að hlusta á íbúa og hafa upplýsingaflæði frá stjórnsýslu aðgengilegt og skýrt er eitt af aðalstólpum góðs samfélags. Garðabær bærinn okkar byggist á íbúavænu umhverfi sem hlúa ber að, bær þar sem allir aldurshópar geta notið sín í skjóli þeirrar þjónustu sem bærinn á að hafa mikinn metnað til að  veita. 




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×